Söguganga: Óskabrunnarnir í Innri-Njarðvík, 13 August | Event in Hafnarfjörður | AllEvents

Söguganga: Óskabrunnarnir í Innri-Njarðvík

Byggðasafn Reykjanesbæjar

Highlights

Wed, 13 Aug, 2025 at 08:00 pm

Innri-Njarðvíkurkirkja

Advertisement

Date & Location

Wed, 13 Aug, 2025 at 08:00 pm (GMT)

Innri-Njarðvíkurkirkja

Kirkjubraut, Innri Njarðvík, Gullbringusysla, Iceland, Hafnarfjörður

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Söguganga: Óskabrunnarnir í Innri-Njarðvík
Karvel Gränz leiðir sögugöngu um óskabrunnana í Innri-Njarðvík. Gangan hefst við Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 20 miðvikudaginn 13. ágúst 2025. Einn brunnur hefur verið endurgerður og annar hreinsaður svo af þeim er mikil prýði. Við þann síðarnefnda komu í ljós áhugaverðar hleðslur sem ekki var vitað um áður.

Karvel hefur persónulega tengingu við brunnana þrjá sem verður fjallað um. Um brunnanan hefur hann ritað:

"Aðkoma mín að brunnunum 3 í Innri-Njarðvík hófst með því er ég sagði föður mínum Áka Granz að framkvæmdir við gerð göngustígsins með strandlengjunni væri stórvirk Jarðýta að ryðja upp úr fjörunni í Kópu malarkamb til að leggja nýja göngustíginn eftir. Pabba var brugðið og vildi þangað strax til að tryggja að ekki væri rutt yfir vatnsbrunn er væri þarna í fjörukambinum sem hann sagði vera menningarverðmæti samofin sögu sjósóknar fyrri tíma.
Þegar í víkina var komið var ekki seinna vænna því stórvirk jarðýta var nánast búinn að ryðja yfir brunnin sem ekki var augljós þarna í umhverfi sínu. Stöðvuðum við jarðýtustjórann og bentum honum á brunnin en hann virtist fegin og sammála að svona fallegur brunnur ber að varðveita og breytti sínu verklagi í samráði við það.
Nokkru seinna eftir að göngustígurinn með strandlengjunni var lokið var mér oft hugsað til brunnsins og velti því fyrir mér hvort hann hefði náttúru sem óskabrunnur og í framhaldi ákvað ég að láta á það reyna.

Ástarbrunnurinn
Á þessum tíma hafði ég verið einn í mörg ár og fannst tími til kominn að hressa upp á tilhugalífið og datt í hug að láta reyna á náttúru brunnsins og kanna hvort hann uppfylli óskir enda fannst mér ég eiga smá tilkall eftir að hafa bjargað honum.
Já, og viti menn að eftir að hafa kastað pening í brunninn og óskað af einlægni að lenda í ástarævintýri, varð ég ekki fyrir vonbrigðum og brunnurinn uppfyllti óskir mínar undanbragðalaust. Gekk þetta svona um tíma og eftir nokkrar heimsóknir í brunnin og upplifað mátt hans við uppfylla óskir mínar ákvað ég að leggja fram mína stóru og hinstu ósk.
Ég óskaði mér af heilum hug að eignast unga og fallega konu sem lífsförunaut og ást okkar yrði eilíf. Ég var varla kominn heim er Facebook lagði til að ég mundi gera vinarbeiðni á gullfallega stúlku sem mér á undarlegan hátt fannst kannast við eins og hafa þekkt hana áður.
Þarna var grunnurinn lagður að minni framtíð og samskipti við stúlkuna vatt upp á sig með nánast daglegum samskiptum þar sem ást okkar þroskaðist í heilt ár þar til við ákváðum að hittast og innsigla hjúskaparheit okkar en í dag eigum við 10 ára hjúskaparafmæli og tvö börn.

Heilsubrunnurinn
Faðir minn hafði gaman af hversu vel rættist úr samskiptum mínum við Ástarbrunninn og benti mér á tvo aðra brunna í Innri Njarðvík ef ég vildi kanna hvort hefðu einhverja náttúru enda ekki ólíklegt að dulin tengsl væru milli þeirra. Annar þeirra er einstaklega fallega hlaðinn brunnurinn milli Tjarnar og Kirkjunnar og hinn er heimilisbrunnur aftan við Stekkjakot.
Fljótlega eftir að eiginkona mín kom til landsins vildi ég að hún hefði nóg fyrir stafni til að festa betur rætur og þannig tryggja betur okkar samband. Var mér hugsað til brunnsins við tjörnina og ákvað að kastaði pening í hann og óskaði heitt og innilega að frúin yrði með barni sem fyrst.
Varð ég ekki fyrir vonbrigðum og náttúra brunnsins opinberaðist nánast strax er konan mín varð ólétt og þannig hófst anar kafli í mínu lífi en fyrir átti ég uppkomna dóttir.
Ári seina er ég var að mála Byggðasafnshúsið þarna ofan við brunnin sagði ég tveimur starfsmönnum frá reynslu minni af náttúru brunnsins gagnvart frjósemi. Vantrúaðir en höfðu gaman að ákváðu þeir að láta á reyna og hentu pening í brunninn og óskuðu þess að eignast barn. Já og ekki brást brunnurinn þar sem kærasta annars þeirra varð ólétt næstum strax og hinn tæplega ári seinna með sinni kærustu.
Til að byrja með hélt ég að þarna væri fundinn Frjósemisbrunnur en með tímanum og af persónulegri reynslu hef ég uppgötvað að þarna er um að ræða öflugan Heilsubrunn. Þegar eitthvað bjátar á hefur það reynst mér nóg að kíkja í brunninn og óska mér bata og þannig viðhaldið hreysti og getu margfalt betri en aldur minn segir til um.

Peningabrunnurinn
Fyrir aftan Stekkjarkot er þriðji brunnurinn og var ég orðinn spenntur að kanna hvort hann hefðu náttúru í takt við hina brunnana. Þar sem ég var orðinn ráðsettur með konu og barn var það helst peningar sem mig skorti til að mæta auknum útgjöldum við fjölskyldulífið.
Var það úr að ég henti pening í brunninn og óskaði mér af heilum hug að eignast meiri peninga og öðlast þannig meira fjárhagslegt öryggi en í hruninu tapaði ég öllu sparifé mínu en hélt íbúðinni. Eins og með hina brunnana reyndist þessi sannkallaður óskabrunnur og ekki leið að löngu uns fjármál mín voru kominn í góðan farveg.
Þar sem þetta er mjög viðkvæmt persónulegt mál, mun ég ekki fara nákvæmlega út í það hér hvernig fjárhagslegur ávinningur minn var en get þó viðurkennt að um er að ræða happafé og arf."

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Innri-Njarðvíkurkirkja, Kirkjubraut,Innri Njarðvík, Gullbringusysla, Iceland, Hafnarfjörður

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Get updates and reminders

Host Details

Byggðasafn Reykjanesbæjar

Byggðasafn Reykjanesbæjar

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Söguganga: Óskabrunnarnir í Innri-Njarðvík, 13 August | Event in Hafnarfjörður | AllEvents
Söguganga: Óskabrunnarnir í Innri-Njarðvík
Wed, 13 Aug, 2025 at 08:00 pm