Sálardans – Dansaðu inn í þinn eigin kjarna.
Heilandi andlegt ferðalag í gegnum hreyfingu og tónlist.
Við dönsum með lokuð augun, því með augun lokuð fer athyglinj frá því að “sjá út” yfir í að skynja inn.
Hreyfingarnar verða sjálfsprottnar frekar enn stýrðar af því að horfa á aðra. Þú ferð að hlusta á líkamann þinn, orkuna þína og hvers hann þarfnast.
Orkuflæðið og umbreytingin sem á stér stað í tímunum geta leitt til andlegrar vakningar og ýmsar tilfinningar gætu komið upp á yfirborðið – við ætlum að leyfa þeim að koma.
Þú færð að tengjast þér sjálfri í gegnum frjálst flæði, fjölbreytta tónlist og í öruggu rými.
• Engin dansreynsla – engar kröfur – bara þú og þín innri orka.
• Tíminn er ætlaður til líkamlegrar og andlegrar heilunar.
• Við förum inn á við – augun lokuð (eða gríma fyrir augun) - gefur frelsi, maður gleymir sér og leysist upp í núvitund.
• Þessi aðferð getur jafnvel vakið upp hugleiðslutilfinningu.
• Við opnum á innsæi og tengingu við sálina.
• Öruggt rími fyrir allar tilfinningar – flæðum í orkunni.
• Þetta er ein áhrifaríkasta leiðin til þess að vinna úr tilfinningum án orða.
Byrjar miðvikudaginn 3.september 4.skipti.
Verð 24.000kr
Skráning á
https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:oo-16:00.
You may also like the following events from Sálarrannsóknarfélag Íslands:
Also check out other
Business events in Reykjavík.