80´s Konukvöld., 31 October | Event in Reykjavík | AllEvents

80´s Konukvöld.

Bíóhöllin Akranesi

Highlights

Fri, 31 Oct, 2025 at 10:00 pm

Vesturgata 27, 300 Akranes, Iceland

Advertisement

Date & Location

Fri, 31 Oct, 2025 at 10:00 pm (GMT)

Vesturgata 27, 300 Akranes

Vesturgata 27, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

80´s Konukvöld.
80´s Konukvöld.
Miðasala hefst, miðvikudaginn 8. okt kl:12:00 á tix.is.

Föstudaginn 31. október verður haldið 80´s Konukvöld í Bíóhöllinni á Akranesi. Þar má búast við miklu stuði og stemningu en um er að ræða það sem kallast á ensku Lip Sync. Var þessi viðburður haldinn í fyrsta skipti á Íslandi í janúar fyrr á þessu ári í Bíóhöllinni og úr varð einstök skemmtun. Eins og þá verða kynnar kvöldsins þeir félagar, Valdi Kriss og Ásgeir Eyþórs, en þeir eru miklir áhugamenn um níunda áratuginn og munu kynna lög og flytjendur eftir sinni bestu vitund.

Að þessu sinni verða konur í aðalhlutverki og verða því öll lög kvöldsins flutt eða sungin af konum. Það má því búast við miklu þegar dætur Skagans stíga á svið og flytja lögin hver á sinn hátt og ljóst að fjölbreytnin verður mikil á sviði Bíóhallarinnar. Það er líklegt að lög með hljómsveitum eins og ABBA, Heart, Bangles, Fleetwood Mac og Blondie hljómi eða með söngkonum eins og Pat Benatar, Madonnu, Donnu Summer, Tinu Turner og fleiri sönggyðjum en það kemur allt í ljós.

Textar laganna verða sýndir á risaskjá og því munu gestir vafalaust syngja hástöfum með lögunum enda er það alveg tilvalið og taka nokkur dansspor í leiðinni. Þá eru miklar líkur á að gestir mæti í
80´s klæðnaði til að upplifunin verði sem best enda er stefnan að þetta verði partý ársins. Frábært tækifæri fyrir vinkonuhópa og saumaklúbba og allar konur í stuði.

Góða skemmtun!


Also check out other Parties in Reykjavík, Entertainment events in Reykjavík.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Vesturgata 27, 300 Akranes, Iceland, Vesturgata 27, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland
Get updates and reminders
Ask AI if this event suits you

Host Details

Bíóhöllin Akranesi

Bíóhöllin Akranesi

Are you the host? Claim Event

Advertisement
80´s Konukvöld., 31 October | Event in Reykjavík | AllEvents
80´s Konukvöld.
Fri, 31 Oct, 2025 at 10:00 pm