Innilega velkomin í Seiðpokagerð með Nínu Wolf Feather fimmtudaginn 23. október frá kl. 19.00 - 22.00.
Að skapa sinn eigin seiðpoka er mjög persónuleg og helg sköpun — þó hún sé alls ekki flókin.
Seiðpoki getur verið hvað sem er: til að vernda, valdefla, styrkja, geyma minningar, eða þjóna sem ferða-altari. Listinn er í raun óendanlegur.
Seiðpokinn er brú milli hins sýnilega og ósýnilega, milli jarðar og anda. Í honum safnar þú því sem tengist þínum gjöfum, getur verið hlutum, tákn eða eða eitthvað frá náttúrunni. Eitthvað sem nærir og minnir þig á hver þú ert.
Ferlið við að skapa pokann er eins konar athöfn í sjálfu sér. Þú velur efni og innihald með athygli og hjarta, og þannig verður pokinn lifandi spegill af þinni innri visku og tengingu við náttúruna.
Hann minnir þig á jafnvægið milli mýktar og styrks, milli þess að gefa og þiggja — og getur fylgt þér í daglegu lífi, í hugleiðslu, á ferðalögum eða á altarinu heima.
Að búa til sinn eigin seiðpoka er því ekki aðeins handverk — það er leið til að tengjast sjálfum sér, jörðinni og kraftinum sem býr í öllu lífi.
Allur efniviður í pokann verður á staðnum.
Kvöldið endar á draumferð þar sem við sækjum skilaboð um hvað eigi að vera í pokanum & virkjum lækningamátt pokans.
Frá Nínu:
Ég hef alla tíð fundið djúpa tengingu við náttúruna – tungutak dýranna, hvíslið í vindinum og kraftinn sem býr í jörðinni. Þar finn ég innblástur til að skapa, umbreyta hráu efni – skinnum, beinum og við – í fegurð og tilgang.
Lífið sjálft er mér hráefni. Mistök mín eru ekki fjötur skammar heldur gjöf vaxandi þekkingar. Líkt og Brené Brown segir:
“Grace means that all of your mistakes now serve a purpose instead of serving shame.”
Ég leita jafnvægis milli mýktar og styrks – að sýna kærleika og virðingu, en einnig standa í eigin sannleika og setja skýr mörk. Þannig fléttast náttúra, sköpun og manneskjan sem ég er í eina heild.
Verð: 12.900.-
Efniviður innifalinn, tesopi & spjall.
Takmarkað pláss í boði.
Tryggðu þér pláss hér:
https://shop.moarstudio.is/products/seidpokagerd-med-ninu-wolf-feather-fim-23-okt
You may also like the following events from MÓAR studio: