KAP // Djúp Orkuvinna – Smjör fyrir taugakerfið
Við vinnum með lífskraftinn þinn, hreinsum til, dýpkum tenginguna og kveikjum á flæði.
Þessir tímar eru öflug blanda af öndun, djúpri slökun, tónlist og orkuvinnu sem styður við úrvinnslu streitu, orkuleysis og ójafnvægis.
Þú liggur á dýnu í öruggu rými, þar sem tónlistin leiðir þig inn í þitt eigið ferðalag að sjálfheilun.
🌀 Dregur úr kvíða og bætir svefn
🌙 Eykur tengingu, sköpun og vellíðan
💫 Losar spennu og dýpkar innsæi
Margir finna fyrir djúpslökun, tilfinningalosun, titring eða einfaldlega nærandi ró.
Við hefjum tímann á nærandi seremóníal kakóbolla eða Jurtate.
Taktu með: þægilegan fatnað og augngrímu (við eigum einnig til láns).
Vertu hjartanlega velkomin/n – nákvæmlega eins og þú ert.
Bjarmi Fannar leiðir kvöldið en hann kynntist Kundalini-orkuvinnu árið 2019 og lærði KAP hjá Þóru Hlín Friðriksdóttur, stofnanda KAP á Íslandi, og hef síðan þá haldið reglulega tíma og skapað rými fyrir orkuvinnu tengda Kundalini-orkunni. Bjarmi hefur einnig lokið Usui Reiki Level 1 og Level 2 undir handleiðslu Melani Koch á Balí, sem dýpkað hefur tenginguna við orkuvinnu og heilun. Bjarmi leggur áherslu á að skapa öruggt og nærandi rými þar sem þátttakendur geta upplifað innri tengingu, orku, lífskraft og ró á sínum eigin forsendum.
Hvar: Móar Studio Bolholti 4, 2. hæð
Hvenær: miðvikudaginn 29. október
Tímasetning 20.00 - 22.00
Verð: 6900.-
Tryggðu þér pláss hér:
https://shop.moarstudio.is/products/kap-djup-orkuvinna-29-okt
You may also like the following events from MÓAR studio:
Also check out other
Food & Drink events in Hafnarfjörður,
Health & Wellness events in Hafnarfjörður.