Birkiland flytur íslensk þjóðlög á Dokkunni Brugghús!
Birkiland er nýstofnaður þjóðlagadúett, skipaður Jóngunnari Biering Margeirssyni og Steingrími Rúnari Guðmundssyni, sem báðir hafa áratugalanga reynslu í tónlistarflutningi – bæði í hljóðfæraleik, með hljómsveitum, í kórum og lúðrasveitum.
Komdu og njóttu íslenskra þjóðlaga við undirleik á langspil sem er smíðað á Þingeyri. Þeir flytja gömul þjóðlög sem hafa lifað í munnlegri geymd Íslendinga um aldir, og segja einnig sögu laganna og frá uppruna þeirra, og veita þannig innsýn í íslenskan þjóðlagaarf.
Viðburðurinn fer fram á Dokkunni Brugghús, þar sem gestir geta gætt sér á ísfirskum bjór eða léttum réttum af matseðli, á meðan tónlistin fyllir rýmið.
📅 Mánudagur 18. ágúst kl. 13:00
📍 Dokkan Brugghús, Ísafirði
Viðburðurinn er styrktur af Viðburðasjóði Ísafjarðarhafna.
Frítt inn – allir velkomnir!
Birkiland performs Icelandic Folk Songs at Dokkan Brugghús!
Birkiland is a newly formed folk duo, featuring Jóngunnar Biering Margeirsson and Steingrímur Rúnar Guðmundsson, both with decades of experience in music performance – from instrumental playing, with bands, in choirs, and brass ensembles.
Come and enjoy Icelandic folk songs accompanied by the langspil, a traditional Icelandic string instrument handcrafted in Þingeyri. The duo performs old songs preserved through generations, and shares the story and origin of each tune, offering a glimpse into Iceland’s rich folk heritage.
The event takes place at Dokkan Brugghús, where visitors can enjoy local beers or light dishes from the menu while the music fills the space.
📅 Monday, August 18 at 1:00 PM
📍 Dokkan Brugghús, Ísafjörður
This event is supported by the Ísafjarðarhöfn Event Fund.
Free entry – everyone welcome!