Sýningarstjóraspjall með / Curator talk with Daría Sól Andrews.   , 29 June | Event in Selfoss | AllEvents

Sýningarstjóraspjall með / Curator talk with Daría Sól Andrews.

Listasafn Árnesinga

Highlights

Sun, 29 Jun, 2025 at 02:00 pm

Austurmörk 21, 810 Hveragerði, Iceland

Date & Location

Sun, 29 Jun, 2025 at 02:00 pm (GMT)

Austurmörk 21, 810 Hveragerði

Austurmörk 21, 810 Hveragerðisbær, Ísland, Hveragerdi, Selfoss, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Sýningarstjóraspjall með / Curator talk with Daría Sól Andrews.
Komið og hittið sýningarstjórann Daríu Sól Andrews 29. júní klukkan 14:00.

Daría Sól var sýningarstjóri sýningarinnar BÆR sem er nú til sýnis í sal 4.

Listamenn: Markus Baenziger (US), Barbara Ellmann (US), Katia Klose (DE), Jóna Þorvaldsdóttir (IS), Debbie Westergaard Tuepah (CA), Mike Vos (US)

Á listasýningunni BÆR, gefur að líta verk alþjóðlegra listamanna sem komu saman árið 2022 í vinnustaðardvöl á Listasetrinu Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði. Listamennirnir eru þau Barbara Ellmann, Jóna Þorvaldsdóttir, Mike Vos, Katia Klose, Debbie Westergaard Tuepah og Markus Baenziger. Sýningin BÆR, í Listasafni Árnesinga, er eins konar áframhaldandi könnun á þessari upprunalegu vinnustaðardvöl þeirra frá árinu 2022, þar sem varanleg tengsl og ný áhrif mynduðust í verkum hvers og eins listamanns.

Listamennirnir dvöldu saman í tvær vikur á Bæ þar sem vissákveðin heild myndaðist á milli þessara ólíku einstaklinga og verka þeirra sem eru eins konar söguþráður og tenging við listasetrið og umhverfi þess á Höfðaströnd. Afraksturinn eru mjög ólík en á sama tíma sam tvinnuð listaverk um einstaka upplifun hvers listamanns af náttúru, menningu og stað.

Ári seinna héldu þau veglega sýningu á Bæ með hluta af þeim verkum sem urðu til á meðan á dvöl þeirra stóð á Bær. Listasýningin BÆR, sem nú verður sett upp í Listasafni Árnesinga, sýnir blöndu af þeim verkum sem voru á fyrri sýningu ásamt nýjum verkum sem listamennirnir hafa þróað með sér út frá dvöl þeirra á Bæ árið 2022. Nýju verkin á þessari sýningu urðu til út frá upplifun þeirra og áhrifum sem þau urðu fyrir á staðnum á meðan á vinnustaðardvöl þeirra stóð.

Hvað tengir saman sex ólíka listamenn, af ólíkum uppruna, sem koma saman í vinnustaðardvöl í sveit í Skagafirði? Það er augljóst að íslenska náttúran hafði mikil áhrif á þau. Hvernig getur þessi reynsla endurómað í listferli þeirra þegar þau snúa aftur í sinn hversdagsleika sinn?

Listamennirnir vinna með fjölbreytta miðla, allt frá ljósmyndun, skúlptúr, innsetningum og málverkum. Í verkum þeirra er sterk tenging við náttúru Íslands, hvort sem um er að ræða ljósmyndirun af íslensku landslagi og formum eða innsetningar og skúlptúra unninum úr náttúrulegu íslensku efni. Hvaða sameiginlega grunn getum við séð í verkum þessara sex listamanna þrátt fyrir ólík efnisstök?

Mike Vos myndar til dæmis borgarlandslag og yfirgefnar byggingar og leggur þær saman yfir senur af náttúrufegurð. Í innsetningsverkinu hennar Debbie Westergaard Tuepah vinnur hún m.a. með umhverfisvænt plast frá Hveragerði, þar sem Listasafn Árnesinga er til húsa, og fundin og manngerð hvalbein. Jóna Þorvaldsdóttir vísar til íslensku hjátrúarinnar í tilraunakenndri analog ljósmyndun með áherslu á einstök náttúruleg smáatriði úr landslaginu á Höfðaströnd. Verk Katia Klose rannsakar þang frá svæðinu í lifandi og súrrealískri ljósmyndaseríu. Markus Baezinger safnar fundnu efni frá Höfðaströnd, bæði náttúrulegu og manngerðu, og skapar úr því forvitnileg skúlptúrverk. Í töfrandi málverkum Barböru Ellmann og abstrakt- saumuðu myndverkum hennar finnum við sterkt fyrir hreyfingu íslensku náttúrunnar.


You may also like the following events from Listasafn Árnesinga:

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Nearby Hotels

Austurmörk 21, 810 Hveragerði, Iceland, Austurmörk 21, 810 Hveragerðisbær, Ísland,Hveragerdi, Selfoss, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Sýningarstjóraspjall með / Curator talk with Daría Sól Andrews.   , 29 June | Event in Selfoss | AllEvents
Sýningarstjóraspjall með / Curator talk with Daría Sól Andrews.
Sun, 29 Jun, 2025 at 02:00 pm