LYKILL AÐ LÍÐAN- barna og unglinga - Málþing Epsilondeildar DKG, 30 October | Event in Selfoss | AllEvents

LYKILL AÐ LÍÐAN- barna og unglinga - Málþing Epsilondeildar DKG

Highlights

Thu, 30 Oct, 2025 at 05:00 pm

2 hours

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Advertisement

Date & Location

Thu, 30 Oct, 2025 at 05:00 pm to 07:00 pm (GMT)

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Tryggvagata 25, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Selfoss, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

LYKILL AÐ LÍÐAN- barna og unglinga - Málþing Epsilondeildar DKG
🌹Verið öll velkomin á Málþing sem ber yfirskriftina LYKILL AÐ LÍÐAN - barna og unglinga sem haldið verður á vegum Epsilon-deildar DKG í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi fimmtudaginn 30. október kl. 17:00-19:00🌹

Málþingið er opið öllum áhugasömum og er þeim alveg að kostnaðarlausu.

Efnistök málþingsins munu fjalla um andlega líðan barna og unglinga en markmið þess er að skapa vettvang fyrir faglega, fordómalausa og fjölbreytta umræðu um þá mikilvægu áskorun sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag.

⭐Halla Tómasdóttir, forseti Íslands mun halda erindi um átakið Riddara kærleikans en það er hreyfing fólks sem vill lifa í samfélagi þar sem kærleikur ræður ríkjum. Verkefnið, sem byggir á virðingu fyrir fórnarlömbum ofbeldis og þeirri von að við getum sameinast um að skapa betra og öruggara samfélag fyrir komandi kynslóðir, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir mannúðlega nálgun og jákvæð áhrif á skólabrag og samskipti barna.

⭐Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri mun fjalla um andlega líðan barna og unglinga og mikilvægi áfallmiðaðrar nálgunar við þróun úrræða. Við verðum öll fyrir áföllum á lífsleiðinni, en áttum okkur ekki alltaf á því að um áfall er að ræða fyrr en kannski mörgum árum seinna en burðumst með afleiðingarnar. Sigrún mun fjalla um úrræði sem hafa reynst vel heima og erlendis og fara yfir hvað við getum lært af því og gert betur í okkar samfélagi.

⭐Raddir ungmenna: fulltrúar unga fólksins deila hugmyndum sínum og sýn á hvað þurfi að gera til að styðja við andlega heilsu og vellíðan þeirra.

⭐Samfélagslögreglan á Suðurlandi: Ellert Geir Ingvason, varðstjóri verður með kynningu á samfélagslögreglunni og þeim verkefnum sem lögreglan kemur að er varða ungt fólk.

🌹Verið öll velkomin í boði samtakanna🌹
Delta Kappa Gamma eru alþjóðasamtök félags kvenna í fræðslustörfum

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Fjölbrautaskóli Suðurlands, Tryggvagata 25, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Selfoss, Iceland
Get updates and reminders
Ask AI if this event suits you
Advertisement
LYKILL AÐ LÍÐAN- barna og unglinga - Málþing Epsilondeildar DKG, 30 October | Event in Selfoss | AllEvents
LYKILL AÐ LÍÐAN- barna og unglinga - Málþing Epsilondeildar DKG
Thu, 30 Oct, 2025 at 05:00 pm