Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu, 3 May | Event in Reykjavík | AllEvents

Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu

Hannesarholt

Highlights

Sat, 03 May, 2025 at 02:00 pm

1 hour

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

Advertisement

Date & Location

Sat, 03 May, 2025 at 02:00 pm to 03:00 pm (GMT)

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík

Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu
Syngjum saman í Hannesarholti er í höndum Sigga og Ingibjargar laugardaginn 3.maí kl.14. Textar á tjaldi og allar kynslóðir syngja með. Frítt inn.

Siggi&Ingibjörg hafa starfað saman við tónleikahald, tónsmíðar og í smiðjuvinnu með fólki á öllum aldri um langt árabil, hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir störf sín. Þar á meðal er 10 ára afmælislag tónlistarhússins Hörpu sem hópur 10 ára tónskálda samdi undir handleiðslu þeirra. Verkefnið hlaut Lúðurinn árið 2022 sem viðburður ársins. Þau unnu einnig að nýrri tónsmíð fyrir geimverur með stórum hópi grunnskólabarna á Íslandi árið 2023 - Sendum tónlist út í geim!, ásamt tónlistarkonunni Sóleyju Stefánsdóttur og hönnunarteyminu ÞYKJÓ. Verkefnið hlaut tilnefninu til alþjóðlegu YAM tónlistarverðlaunanna árið 2023 sem verkefni ársins í flokki þátttökuverkefna. Þau vinna nú að frumsömdu efni og stefna á að gefa út sína fyrstu plötu saman á næsta ári.

Siggi og Ingibjörg koma nú aftur til að syngja saman í Hannesarholti, en síðast þurftu þau að streyma heim í stofu á Covid tímum. Þau eru spennt að taka á móti fólki og syngja saman í raunheimum enda ekkert sem jafnast á við samveru í tónlist. Efnisskráin er aðgengileg og skemmtileg fyrir söngunnendur á öllum aldri!
www.facebook.com/siggiogingibjorg

Sigurður Ingi Einarsson er lagahöfundur, hljóðfæraleikari og tónlistarkennari. Hann lauk burtfararprófi á slagverk við FÍH auk þess að ljúka BA í skapandi tónlistarmiðlun við LHÍ 2014. Síðustu ár hefur hann verið iðinn við allskyns spilamennsku og kennslu. Eitt af stærstu verkefnum hans síðustu ár er tónsköpunarvinnusmiðjan Spunavélin sem hann bjó til og stýrir, en einnig hefur hann sinnt tónlistar- og kennsluverkefnum fyrir Hörpu, RÚV og Listahátíð. Í dag starfar Sigurður að hluta til sem slagverkskennari í Tónskóla Sigursveins. Sigurður er meðlimur í hljómsveitinni VAR sem gaf út plötuna Neverending year árið 2020. VAR hefur meðal annars spilað á nokkrum tónleikum í Japan, auk þess að hafa spilað í Bandaríkjunum og á fjölmörgum tónleikum víða um Evrópu. Sigurður Ingi semur tónlist og texta undir eigin nafni og er von á hans fyrstu sólólpötu á þessu ári.

Ingibjörg Fríða Helgadóttir er sjálfstætt starfandi söngkona með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist og hefur unnið að fjölda verkefna. Hún hefur lokið burtfararprófi bæði í klassískum söng og rytmískum söng ásamt BA prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands þar sem hún var skiptinemi um skeið í jazzdeild Sibeliusarakademíunnar í Helsinki. Síðustu ár hefur hún starfað við tónlist frá ýmsum hliðum. Hún hefur komið fram með atvinnukórum og kammerhópum í tónlistarflutningi og upptökum (m.a. Cantoeque Ensemble og Schola Cantorum), jazz- og popphljómsveitum, sungið inn á teikni- og kvikmyndir, komið fram á fjölskylduskemmtunum, kennt börnum og ungmennum tónlist í vinnusmiðjum og einkatímum. Hún sinnir einnig stundarkennslu við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Ingibjörg Fríða er dagskrárgerðarkona og stýrir tveimur vinsælustu hlaðvörpum RÚV í flokki fjöskylduefnis, Þjóðsögukistan og Í ljósi krakkasögunnar. Hún starfaði einnig sem fyrsti verkefnastjóri barnamenningar í tónlistarhúsinu Hörpu frá byrjun árs 2022 til ársloka 2024. Af útgefinni tónlist má nefna plötuna Konan í speglinum (2023) með dúettinum Ingibjargir og Jazzhrekkur (2023) með Leifi Gunnarssyni og Sunnu Gunnlaugsdóttur. Fyrir þá plötu hlaut Ingibjörg tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir söng ársins í djassi.


You may also like the following events from Hannesarholt:

Also check out other Music events in Reykjavík, Entertainment events in Reykjavík.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Event Tags

Nearby Hotels

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change.We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Get updates and reminders

Host Details

Hannesarholt

Hannesarholt

7 Followers

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu, 3 May | Event in Reykjavík | AllEvents
Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga og Ingibjörgu
Sat, 03 May, 2025 at 02:00 pm