Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi , 10 December | Event in Reykjavík

Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands

Highlights

Wed, 10 Dec, 2025 at 08:45 am

1.5 hours

Norræna húsið The Nordic House

Advertisement

Date & Location

Wed, 10 Dec, 2025 at 08:45 am to 10:15 am (GMT)

Norræna húsið The Nordic House

Bókmenntahátíð í Reykjavík / the Reykjavik International Literary Festival, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi
Opinn viðburður á vegum utanríkisráðuneytisins, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Félags Sameinuðu þjóðanna

Á alþjóðlegum degi mannréttinda er tilefni til að ræða stöðu mannréttinda í heiminum og mikilvægi þess að standa vörð um þau til að stuðla að friði og réttlæti. Hvernig tryggjum við vernd og eflum samstöðu á tímum þar sem grafið er undan mannréttindum? Hvernig getur Ísland verið öflugur málsvari mannréttinda á alþjóðlegum vettvangi?

Á tímum þar sem mannréttindi og friður standa víða höllum fæti er það skýr afstaða Íslands að varanlegur friður geti ekki ríkt án virðingar fyrir mannréttindum. Sem smáríki og herlaus þjóð eigum við beina hagsmuni af því að alþjóðalög séu virt og að grundvallarréttindi allra séu tryggð.

Ísland hefur um áratuga skeið unnið að því að efla mannréttindi, frið og öryggi í alþjóðlegu samstarfi. Í því starfi hefur sérstök áhersla verið lögð á jafnrétti kynjanna og stöðu kvenna, réttindi barna og ungmenna, vernd hinsegin fólks og að styrkja lýðræði, tjáningarfrelsi og fjölmiðlafrelsi. Í málstofunni verður fjallað um þessi áhersluatriði og gildi mannréttinda fyrir þróun, frið og öryggi í heiminum og hvernig Ísland getur haft áhrif langt umfram stærð í þessum mikilvæga málaflokki.

Áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum
Opnunarávarp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra

Pallborðsumræður: Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Bylgja Árnadóttir, yfirmaður mannréttindamála, utanríkisráðuneyti, Jóhannes Þór Skúlason, gjaldkeri Samtakanna ´78, Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland

Málstofustjóri: Kári Hólmar Ragnarsson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands

Boðið verður upp á léttar veitingar frá klukkan 08:45

Öll velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér https://forms.office.com/e/ZHPKRz90kC

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Norræna húsið The Nordic House, Bókmenntahátíð í Reykjavík / the Reykjavik International Literary Festival, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Get updates and reminders
Ask AI if this event suits you

Host Details

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi , 10 December | Event in Reykjavík
Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi
Wed, 10 Dec, 2025 at 08:45 am