Langar þig að læra að hekla körfur úr þykkum og girnilegum macramé bómullar þráðum?
Vertu þá hjartanlega velkomin á vinnustofu Flóðs & fjöru í Bolholti 4, 2. hæð, mánudaginn 1. september kl. 18:30-20:30 með Heru Sigurðardóttur. Öll velkomin, bæði þau sem kunna að hekla og þau sem eru byrjendur.
Samverustundin hefst á hlýjum tebolla og léttum inngangi um töfra handavinnunnar og allt efni verður á staðnum. Hver þátttakandi fær efni í tvær körfur og heklunál í stærð 8 og uppskrift á ensku.
Verðið er 12.900 kr.
Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?