🌙 Konur & Hvíld
💤🧘♀️ Svefnheilsa kvenna, hjartaopnandi kakóhugleiðsla, fræðsla og Jóga Nidra
🌿 Komdu og taktu þátt í nærandi kvöldstund sem sameinar fræðslu um svefnheilsu kvenna, svefnráð og jóga nidra djúpslökun.
👩⚕️🧘♀️ Inga Rún Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnráðgjafi hjá Betri Svefn og SheSleep (svefn-app), jóga- og nidra kennari leiðir viðburðinn. Inga Rún hefur sérþekkingu á sviði taugasálfræði en síðustu ár hefur svefninn átt hug hennar allan þar sem hún hefur starfað við greiningu, meðferð og fræðslu á sviði svefns og tekur þátt í þróun á aðgengilegum rafrænum lausnum við svefnvanda. Hún hefur mikinn áhuga á mikilvægi slökunar og jóga nidra fyrir svefn og andlega heilsu. Viðburðurinn er ætlaður konum, þar sem sérstök áhersla er á fræðslu um svefnvanda í tengslum við barneignir, tíðahringinn, breytingaskeiðið, streitu og fleiri áskoranir sem konur mæta gjarnan á lífsleiðinni.
📅 Dagskrá:
💖 Kakó & ásetningur: Við byrjum stundina með hjartaopnandi ceremonial-kakói eða te fyrir þær sem vilja og setjum okkur ásetning fyrir tímann.
🛌💤 Fræðsla um svefn, streitu, svefnvanda og svefnheilsu kvenna: Inga Rún fræðir um svefn og algengan svefnvanda, áhrif streitu á svefn og mikilvægi slökunar er kemur að góðri svefnheilsu. Hvaða svefnráð virka best? Hvaða áhrif hafa mismunandi skeið tíðahringsins á svefn? Hvað er til ráða þegar svefninn fer úr skorðum í tengslum við barneignir eða á breytingaskeiðinu? Þurfa konur meiri svefn en karlar? Svefnkvíði, hvað er það? Inga Rún svarar meðal annars þessum spurningum í fræðslunni og kynnir einnig fyrir þátttakendum aðgengilega, ódýra og gagnreynda rafræna lausn sem Betri Svefn hefur þróað til að bæta svefn.
🧘♀️✨ Mjúkt jóga: Jógastöður sem styðja við góðan svefn, róa taugakerfið, draga úr spennu í líkamanum og hjálpa til við að minnka streitu og kvíða.
🕉️🪷 Jóga nidra & gong slökun: Jóga nidra djúpslökun og gongspil – mjög öflug verkfæri til að virkja sefkerfi líkamans og styðja við betri svefn og vellíðan.
🧘♀️🌙 Hugleiðsla: Við endum viðburðinn á nærandi hugleiðslu sem undirbýr líkama og huga fyrir endurnærandi svefn.
💰 Verð: 6.900kr
Hlekkur á miðasölu væntanlegur.