KAP með lifandi tónferðalagi & Cacao
Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao sem hjálpar þér að setjast í hjartaorkuna þína og slökunarástand inn í líkamann þinn.
Við notum 100% hreint, lífrænt og heilsubætandi Cacao frá Perú.
KAP er Djúp Orkuvinna ✨
Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja.
Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum.
Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur.
KAP er smjör fyrir taugakerfið þitt 🫠
Við byrjum oft á öndunaræfingum eða hristum okkur aðeins til að keyra orkuna í gang. Svo liggur þú á dýnu í rúmlega klukkutíma.
Í orkuvinnunni snertum við nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan ykkur.
Í tímanum er mögnuð lifandi tónlist og spilar hún stórt hlutverk á ferðalaginu þar sem tónarnir smjúga inn í orkuna þína og líkama og hreyfa við því sem þú þarft á að halda.
Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér (við erum einnig með augngrímur til láns).
Verð: 9500 kr
Tryggðu þér pláss með því að festa kaup á miða í tickets.
Hlökkum til að taka á móti ykkur 😍
Íris Ann & Kolbrún leiða KAP & Danni leiðir lifandi tónferðalag.
Viðburðurinn er haldinn í REYR Studio Fiskislóð 31 B, gengið inn bílaþvottastöðvarmegin.