ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF, 11 August | Event in Raufarhofn | AllEvents

ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF

Myndlistaskólinn Í Reykjavík

Highlights

Mon, 11 Aug, 2025 at 09:00 am

Óskarsbraggi, 675 Norðurþing, Ísland

Advertisement

Date & Location

Mon, 11 Aug, 2025 at 09:00 am - Fri, 15 Aug, 2025 at 03:00 pm (GMT)

Óskarsbraggi, 675 Norðurþing, Ísland

Óskarsbraggi, Óskarsbraggi, 675 Norðurþing, Ísland, Raufarhöfn, Nordur-Tingeyjarsysla, Iceland, Raufarhofn

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF
Dagana 11.-15. ágúst býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á áhugavert námskeið á Melrakkasléttu rétt sunnan við Heimskautsbaug en þetta er í fjórða sinn sem námskeiðið er haldið, með örlítið breyttu sniði hverju sinni.

Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en markmiðið er að kynna myndlist sem verkfæri til rannsóknar og skoðunar. Viðfangsefnið verður hin harðbýla og töfrandi náttúra svæðisins. Þátttakendur fá einnig innsýn í menningu, sögu og samfélag sem enn blómstrar á þessu hrjóstruga en hlunnindaríka svæði.

Farið verður í vettvangsferðir bæði lengri og styttri og unnið verður í og með náttúrunni. Vettvangsferðirnar eru bæði hugsaðar sem tilraun til tengslamyndunar við svæðið og söfnun hughrifa og viðfangsefna.

------------------------------

Leiðbeinendur verða myndlistarmennirnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Þórarinn Blöndal (sem jafnframt eru dellumenn um silungsveiði). Einnig mun Snorri Freyr Hilmarsson teiknari, leikmyndahönnuður og staðarhaldari Óskarsbragga leiðbeina eftir atvikum. Matráður er Signý Jónsdóttir vöruhönnuður en hún hefur rannsakað og unnið með mat í hönnun sinni og er framúrskarandi kokkur. Hún hefur meðal annars unnið merkilega hönnunarrannsókn á melgresi.

Alla jafna fer kennsla fram frá kl. 09:00 á morgnana til kl. 15:00 á daginn. Ef veður leyfir verður farið í veiðiferðir í framhaldinu sem þó er ekki liður í skipulagðri dagskrá.

Verð á námskeiðið eru 120.000 kr. en staðfestingargjald upp á 40.000 kr. er greitt við skráningu. Síðasti mögulegi skráningardagur á námskeiðið er mánudagurinn 30. júní.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rannsóknastöðina Rif og Heimsenda, menningarfélag Óskarsbragga á Raufarhöfn, með tilstyrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.

Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu Myndlistaskólans: https://myndlistaskolinn.is/namskeidalisti/2025s-3mynd2ea00

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF can be booked here.

Advertisement

Nearby Hotels

Óskarsbraggi, 675 Norðurþing, Ísland, Óskarsbraggi, Óskarsbraggi, 675 Norðurþing, Ísland,Raufarhöfn, Nordur-Tingeyjarsysla, Iceland, Raufarhofn

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Myndlistaskólinn Í Reykjavík

Myndlistaskólinn Í Reykjavík

1 Followers

Are you the host? Claim Event

Advertisement
ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF, 11 August | Event in Raufarhofn | AllEvents
ENDIMÖRK ALHEIMSINS: NÁTTÚRA OG LÍF VIÐ YSTA HAF
Mon, 11 Aug, 2025 at 09:00 am