Kynningarfundur um tillögur að nýrri kennslulaug og stækkun útisvæðis Ásvallalaugar ℹ️🏊♂️🤽♀️
Hafnarfjarðarbær boðar til opins íbúafundar þar sem kynntar verða hugmyndir að stækkun útisvæðis Ásvallalaugar ásamt hugmyndum að nýrri kennslulaug 👌Fundurinn verður haldinn mánudaginn 13. október kl. 18 í sal Ásvallalaugar á 2. hæð Fundarstjóri er Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Dagskrá
Kynning á verkefni. Aron Freyr Leifsson, Davíð Ingi Bustion og Sveinn Bjarki Þórarinsson, arkitektar frá Batteríinu, kynna tillöguna og kalla eftir ábendingum frá íbúum.
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar og hönnuðir verða til samtals við fundargesti eftir kynninguna. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta til fundar, kynna sér fyrirhugaðar framkvæmdir og taka þátt í samtalinu um framtíð svæðisins 👌
Hlökkum til að sjá ykkur!
-------------------------------------
ÞÍN SKOÐUN SKIPTIR MÁLI
Eitt af markmiðum heilsubæjarins Hafnarfjarðar er að stuðla að aukinni vellíðan íbúa með heilsueflandi aðgerðum til frambúðar. Þessi stækkun á útisvæði Ásvallalaugar er liður í áframhaldandi og stöðugri vegferð að aukinni virkni og þátttöku samfélagsins í Hafnarfirði. Við köllum eftir hugmyndum íbúa og annarra áhugasamra um allt það sem ætti heim á útisvæði Ásvallalaugar.
Sendu þína hugmynd á netfangið:
aGFmbmFyZmpvcmR1ciB8IGhhZm5hcmZqb3JkdXIgISBpcw==
-------------------------------------