Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg, 22 June | Event in Hafnarfjörður | AllEvents

Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Highlights

Sun, 22 Jun, 2025 at 05:00 pm

1.5 hours

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland

Advertisement

Date & Location

Sun, 22 Jun, 2025 at 05:00 pm to 06:30 pm (GMT)

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður

Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran, Kristín Sveinsdóttir mezzósópran, Unnsteinn Árnason bassi og píanóleikarinn Eva Þyri Hilmarsdóttir flytja gullfallega og dramatíska norræna ljóðatónlist eftir tónskáldin Sibelius, Grieg, Stenhammar, Sjöberg, Rangström, Árna Thorsteinsson, Markús Kristjánsson, Selmu Kaldalóns og Sigfús Einarsson. www.songhatid.is

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á 14.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 14.6.-29.6.2025. Takmarkað upplag er í boði.

EINA SUMARNÓTT
SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG
14.6-29.6.2025

TÓNLEIKAR:

TÍMINN OG VATNIÐ
Lau. 14.6. kl. 17:00
Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir

ÞAÐ VAR EITT KVÖLD
Sun. 15.6. kl. 17:00
Mótettukórinn, Stefan Sand

ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR
Lau. 21.6. kl. 17:00
Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui

DRAUMAR ÚR NORÐRI
Sun. 22.6. kl. 17:00
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir

MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 26.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 27.6. kl. 17:00
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY
Lau. 28.6. kl. 17:00
Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Şimşek, Abélia Nordmann

ÓPERUGALA
Sun. 29.6. kl. 17:00
Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi

Eina sumarnótt
Sönghátíð í Hafnarborg 2025

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14. - 29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.

Á Sönghátíð má hlusta á fjölbreytta tónleika með gamalli og splunkunýrri íslenskri og erlendri tónlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljóðasöng, þjóðlög, kórverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.

Á hátíðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem rétt eru að hasla sér völl núna og bjartar vonir framtíðarinnar.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því níunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com Miðasalan fer fram á Tix.


NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:

SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
23. júní - 27. júní
9:00-12:00 & 13:00-16:00
Fyrir 6-12 ára
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir

TÓNLISTARSMIÐJA
28. júní
kl. 11:00-11:45
kl. 13:00-13:45
Valgerður Jónsdóttir
Fyrir 3-5 ára
með foreldrum

MASTER CLASS
23. - 26. júní
kl. 9:30-16:30
Kristinn Sigmundsson
Fyrir söngnemendur og söngvara

KRÍLASÖNGUR
29. júní
kl. 11:00-11:45
kl. 13:00 og 13:45
Svafa Þórhallsdóttir
Fyrir 6-18 mánaða með foreldrum

Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com







You may also like the following events from Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest:

Also check out other Workshops in Hafnarfjörður.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg can be booked here.

Advertisement

Nearby Hotels

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland,Hafnarfjörður, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg, 22 June | Event in Hafnarfjörður | AllEvents
Draumar úr norðri - Sönghátíð í Hafnarborg
Sun, 22 Jun, 2025 at 05:00 pm