Staðsetning: Hallormsstaðaskóli
Dagsetning: 30. júní - 4. júlí 2025
Tímasetning: 09:00 - 16:00
Námskeiðsgjald: 95.000kr
Sérfræðingur: Ragnheiður Björk Þórsdóttur (Ragga) textíllistamaður og vefnaðarsérfræðingur
ATH - Námskeiðið er orðið fullt að þessu sinni. Hér fyrir neðan getur þú skáð þig á biðlista og haft verður samband ef pláss losnar.
SKRÁNING:
https://forms.gle/tKetLES1NKrAEtAFA
Innifalið
Kennsla og fræðsluefni frá Ragnheiði Björk, afnot af vefstól og aðgangur að Baðstofu, vefjarefni innifalið í prufustykki samkvæmt verkefnum vinnustofunnar. Hádegisverður alla námskeiðsdagana ásamt kaffi og te.
Vefnaðarnámskeið með Ragnheiði Björk vefnaðarsérfræðingi á Baðstofu Hallormsstaðaskóla. Ragnheiður Björk mun kenna grundvallaratriði í bindifræði, uppsetningu á vef í vefstól og hvernig lesið er úr vefnaðar uppskriftum. Þátttakendur fá að taka þátt í öllu ferlinu við uppsetningu á vef í vefstól; að rekja slöngu, rifja í vefstól, þræða í haföld og skeið og binda upp í vefstól auk þess að vefa mismunandi verkefni m.a. íslenskan glitvefnað og vefnaðarmunstur frá stofnanda skólans Sigrúnu P. Blöndal. Farið verður yfir helstu vefnaðaraðferðir; einskeftu, vaðmál, ormeldúk og samsettar bindinga. Einnig verður farið í útreikninga fyrir vefnað og mismunandi grófleika á garni sem notað er í uppistöðu og ívaf.
Dvöl í Hallormsstaðaskóla
Njóttu þess að dvelja í Hallormsstaðaskóla á námskeiðstíma með skóginn umvafinn í kringum þig. Gisting getur verið styrkhæf - allar upplýsingar um kostnað er að finna í gjaldskrá skólans. Sendu okkur tölvupóst
aHNrb2xpbm4gfCBoc2tvbGlubiAhIGlz eða hringdu í síma 4711761 til að bóka herbergi.
Kannaðu þinn rétt á ferða-, námskeiðs- og tómstundastyrk verkalýðsfélaga og fyrirtækja. Stéttarfélög geta beðið um staðfestingu á þátttöku.
Nánari upplýsingar eru í síma 471 1761 eða skrifið til
aHNrb2xpbm4gfCBoc2tvbGlubiAhIGlz