40 ára afmælistónleikar taka tvö (ath frestað til 10. júlí), 10 July | Event in Egilsstadir | AllEvents

40 ára afmælistónleikar taka tvö (ath frestað til 10. júlí)

Highlights

Thu, 10 Jul, 2025 at 05:00 pm

1.5 hours

Eskifjarðarkirkja

Advertisement

Date & Location

Thu, 10 Jul, 2025 at 05:00 pm to 06:30 pm (GMT)

Eskifjarðarkirkja

Dalbraut 3, 735 Fjarðabyggð, Ísland, Eskifjörður, Egilsstadir, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

40 ára afmælistónleikar taka tvö (ath frestað til 10. júlí)
Þórður Sigurðarson hefur hefur starfað við tónlist frá 17 ára aldri.
Hann lauk kirkjuorganista prófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar meðfram menntaskóla, fór því næst til Noregs og lauk þar námi við Viken folkehögskole í Rytma tónlist og hefur einnig lokið grunnnámi í jazz píanóleik við The New School for Jazz
and Contemporary Music í New York.

Þrátt fyrir ungan aldur er reynsla Þórðar víðtæk á sviði tónlistarinnar og spannar þátttöku í verkefnum á sviði Jazz, popp, rokk og klassískur. Hann hefur sungið í kórum frá unga aldri og stjórnað Kirkjukórum á Langanesi, Norðfirði, Mosfellsbæ og einnig Karlakór Kjalnesinga. Meðfram organistastarfi í Neskaupstað stjórnaði hann tónlist við flutning á söngleikjum listadeildar
Verkmenntaskóla Austurlands og þurfti þá einnig að útsetja fyrir kórinn. Hann hefur sett upp stór klassísk og trúarleg verk í starfi sínu innan kirkjunnar og stjórnað kór og stórri hljómsveit. Rytma tónlistin hefur spilað stóran þátt í lífi hans og hefur hann spilað í hinum ýmsu hljómsveitum, m.a. Rock Paper Sisters sem hituðu upp þegar Billy Idol spilaði í Laugardalshöll.

Atli Sigurðsson hóf sitt tónlistarnám við 10 ára aldurinn á Baritón horn hjá Eiríki Stephensen (Hundur í óskilum) við Tónlistarskóla Dalvíkur og síðar lítillega hjá Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Hann hóf sitt hornnám hjá Helga Þ. Svavarssyni við Tónlistarskólann á Akureyri og fór svo suður og lærði hjá Joe Ognibene við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hætti í tvö ár að spila og hóf nám aftur við Tónlistarskólann á Akureyri aftur hjá Helga Þ. Svavarssyni og fór þaðan til Ellu Völu Ármannsdóttur og kláraði framhaldsprófið vorið 2017. Þaðan lá leiðin í Listaháskólann og var þar undir handleiðslu Emils Friðfinnssonar í 4 ár og kláraði B.A. gráðu í hornleik þaðan.

Atli hefur spilað með Nordiska Ungdomsorkestern, Orkester Norden, Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins, Ungsveit SÍ, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna.


Efnisskrá:

Charles Gounod (1818-1893)
Ave María (úts. Paul M. Stouffer)
fyrir horn og píanó (orgel)
Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791)
Ave verum corpus
(úts. R. Horvath) fyrir horn og píanó (orgel)
Franz Schubert (1797-1828)
Ave María op. 52 nr 6 (úts. R. Horvath)
Franz Strauss (1822-1905)
Nocturno op. 7 fyrir horn og píanó

Bernard Krol (1920-2013)
Laudatio fyrir einleikshorn

Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791)
Hornkonsert nr. 3 í Es dúr KV 447
(Allegro/Andante/Rondo Allegro)

Flytjendur eru Atli Sigurðsson horn
og Þórður Sigurðarson orgel/píanó

Miðaverð er 3000 kr fyrir fullorðna og 2000 fyrir eldri borgara og öryrkja og frítt fyrir börn.


Also check out other Music events in Egilsstadir, Entertainment events in Egilsstadir.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Event Tags

Nearby Hotels

Eskifjarðarkirkja, Dalbraut 3, 735 Fjarðabyggð, Ísland,Eskifjörður, Egilsstadir, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Get updates and reminders
Advertisement
40 ára afmælistónleikar taka tvö (ath frestað til 10. júlí), 10 July | Event in Egilsstadir | AllEvents
40 ára afmælistónleikar taka tvö (ath frestað til 10. júlí)
Thu, 10 Jul, 2025 at 05:00 pm