Síðasta TÓLF TÓNA KORTÉR ársins gengur senn í garð!
Kortérslangir tónleikar á Listasafninu á Akureyri
laugardaginn 6. desember
kl. 15,
endurteknir klukkan 16.
Aðgangur er ókeypis, aðgengi gott og öll velkomin!
Jón Þorsteinn Reynisson mun í aðventuhúminu, fyrir milligöngu harmoniku sinnar, leiða okkur um tónlistarheim Sofiu Gubaidulinu. Hún er eitt mesta tónskáld harmonikutónlistar fyrr og síðar. Gubaidulina fæddist árið 1931 en lést í mars síðastliðnum.
Því er við hæfi að heiðra minningu hennar með því að gefa henni lokaorðið á TÓLF TÓNA KORTÉRINU í ár. Jón Þorsteinn leggur einnig tónsmíðaorð í belg með frumflutningi nýs tónverks eftir sjálfan sig. Önnur eins efnisskrá dugir til að halda hvaða grýlu, hrekkjalóm eða jólaketti sem er fjarri okkur í aðdraganda jóla. Svo missið ekki af þessum einstöku aðventutónleikum!
Aðgangur að safninu er ókeypis meðan á TÓLF JÓLA-TÓNA KORTÉRINU stendur. Það er unun að hlusta saman á tónlist í kortér og skoða svo sýningar safnsins. Jafnvel með viðkomu á Ketilkaffi, ef hungur eða þorsti sverfa að.
Börn, öldungar og öll þar á milli eru velkomin á tónleikana. Öll getum við þar fundið okkur stað til að hlusta saman á hljóð, tóna og þögn stutta stund.
Efnisskrá:
Fachwerk - S. Gubaidulina
De profundis - S. Gubaidulina
Nýtt tónverk ónefnt enn - Jón Þorsteinn Reynisson
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ þakkar Listasafninu fyrir gjöfult samstarf, og Sóknaráætlun Norðurlands Eystra, Akureyrarbæ, Tónskáldasjóði RÚV/STEFs og Menningarsjóði FÍH stuðninginn á árinu sem er að líða.