WR Íþróttamót Geysis 2025
WR Íþróttamót Geysis fer fram 29. - 1. júní á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir fyrsta utanhús móti ársins á Rangárbökkum enda dagskrá sumarsins þétt.
Verið er að vinna í vellinum eftir veturinn og lítur hann vel út.
Mótið er opið og leggjum við upp með að bjóða upp á sem flesta flokka en komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka verða þeir felldir niður.
Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á
c2tyYW5pbmdnZXlzaXIgfCBnbWFpbCAhIGNvbQ==
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráningar ekki 25 í ungmenna og fullorðinsflokkum eru eingöngu riðin A-úrslit
- Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
- Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 10.000 kr – fullorðinsflokkar og ungmennaflokkur
- 8.500 kr – 150m & 250m skeið
- 6.500 kr – 100m flugskeið
- 6.500 kr – barna- og unglingaflokkur
- 1.500 kr – pollaflokkur
Boðið verður upp á eftirfarandi flokkum:
Meistaraflokkur
T1, T3, T2, T4, V1, V2, F1, F2, PP1, P2
1.flokkur
T3, V2, F2, T4, PP1, P2
Opinn flokkur og Ungmennaflokkur í básaskeiði
P1 & P3
Ungmennaflokkur
T1, T3, T2, T4, V1, V2, F1, F2, PP1, P2
Unglingaflokkur
V2, F2, T3, T4 og T7, PP1
Barnaflokkur
V2, T4, T3 og T7
Pollaflokkur
Pollatölt
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og verður opin til kl. 23:59, föstudagsins 23. maí 2025