Töðugjöldin verða haldin í Rangárþingi ytra í ágúst og ná hápunkti með hátíðardegi á Hellu 16. ágúst! Mikið verður um dýrðir alla vikuna og ættu flest að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagskráin verður uppfærð þegar nær dregur en þegar eru nokkrir viðburðir staðfestir:
Miðvikudagur 13. ágúst:
-Töðugjaldaganga á Gíslholtsfjall kl. 18 með Ferðafélagi
Rangæinga.
Nánar hér:
https://www.ffrang.is/is/dagatal/todugjaldaganga-a-gislholtsfjall
Fimmtudagur 14. ágúst - Kartöfluhátíð í Þykkvabæ
- Kartöflusúpa fyrir alla í íþróttahúsinu Þykkvabæ
- Kartöflumarkaður
- Hátíðarlestin
- Leikir, tónlist og gleði
Föstudagur 15. ágúst:
- Töðugjaldahlaupið - nánar auglýst síðar
- Þorpararöltið á Hellu - nánar auglýst síðar
Laugardagur 16. ágúst: Hátíðardagur á Hellu
Dagurinn 10-16:
- Tækjasýning á árbakkanum á Hellu
- Morgunverður í íþróttahúsinu kl. 10 - harmonikkusveit Suðurlands leikur undir
- Töðugjaldamarkaður í íþróttahúsinu 10-14
- Listasmiðja barna með „Hugverk í heimabyggð“ í íþróttahúsinu
- Hæfileikakeppni barna og dýra - úti
- Tónafljóð - úti
- Lalli töframaður - úti
- Hoppukastalar, loftboltar og „Nautið“ - úti
- Teymt undir krökkum í söðli - úti
- Matarvagnar - úti
- Candyfloss og krap - úti
- Sjoppa 10. bekkjar
Kvöldvaka frá 20-23
- Jóel Sæmundsson leikari stjórnar dagskrá með gríni og gleði
- Sigurvegari í hæfileikakeppni barna kemur fram (eldri hópur)
- VÆB
- Aron Can
- Gunni Óla
- Guðrún Árný stýrir brekkusöng
- Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu
Sunnudagur 17. ágúst:
- Leikhópurinn Lotta sýnir Hróa hött á íþróttavellinum á Hellu kl. 11:30 - FRÍTT INN
- Listasmiðja fyrir börn kl. 14 - nánar auglýst síðar
- Heimsókn í Ölversholt - nánar auglýst síðar
You may also like the following events from Töðugjöld Rangárþingi ytra: