Tíminn líður hægt, 24 May | Event in Selfoss | AllEvents

Tíminn líður hægt

Klúbbhúsið

Highlights

Sat, 24 May, 2025 at 04:00 pm

Flúðir

Advertisement

Date & Location

Sat, 24 May, 2025 at 04:00 pm - Sun, 25 May, 2025 at 01:00 pm (GMT)

Flúðir

Laugarvatn, Arnessysla, Selfoss, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Tíminn líður hægt
Tíminn líður hægt er tónlistarhátíð sem helguð er meistara Bob Dylan. Þetta er þriðja Dylan hátíðin sem aðstandendur hennar standa fyrir, að þessu sinni í flottu félagsheimili Hrunamanna að Flúðum. Fyrsta Dylan hátíðin var haldin á Skagaströnd (Veltandi steinn) og sú síðari í Iðnó í Reykjavík (Tímarnir líða og breytast).

Heiti hátíðarinnar í þetta sinn er sótt í lagið Time passes slowly á plötunni New morning sem út kom árið 1970. Lagið dregur upp mynd af friðsælu og nánast draumkenndu lífi í sveitinni (fjöllunum), þar sem ekkert þarf að gerast í flýti, andstæða hins hraðskreiða og krefjandi lífs sem flestir þekkja – og þá er viðeigandi að halda hátíðina á friðsælum Flúðum í Hrunamannahreppi.

Hátíðin er haldin á 84 ára afmælisdegi Dylan, 24. maí 2025. Hún hefst síðdegis á laugardegi með tónlistarflutningi og barsvari um líf og tónlist Dylan og um kvöldið heldur skipulögð tónlistardagskrá áfram. Á sunnudeginum fer fram Dylan messa í Hrunakirkju en um messuhaldið sér sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson sóknarprestur. Í messulok verður boðið upp á kaffi og margrómað bananabrauð að hætti Beatty Zimmerman, móður Dylans.

Flytjendur sem koma fram eru:
* Slow train – er þekktasta og elsta starfandi Dylan band landsins.
* Chris Foster – er snillingur í þjóðlagatónlist sem hann flytur af mikilli fingrafimi og túlkun hans á perlum Dylans er einstök.
* Bára Grímsdóttir - landsþekkt tónskáld og kvæðakona en hún tekur fyrir þekkta texta eftir Dylan og kveður þá á Húnvetskan hátt
* Sverrisson Hotel – sem sérhæfir sig í engu og spilar allskonar, en hefur tekið ástfóstri við tónlist Dylan.
* Þrír englar og þreyttur hestur – stofnuð af áhugafólki um Bob Dylan og tekur fyrir minna þekkt lög og gerir að sínum.
* Sr. Henning Emil Magnússon – er einn af okkar helstu Dylan-sérfræðingum flytur gestum fróðleik á kvölddagskránni.
* Dulúð - dregur nafn sitt af fæðingarbæ Dylan og var stofnuð til að flytja hans tónlist aðallega.
* Gunk - gamalreyndir popparar sem nálgast Dylan í Bonham/ Zeppelin stíl

Dagskrá og nánara skipulag verður kynnt síðar – miðasala fer fram á Tix og við innganginn - kr. 3.500.

https://tix.is/event/19450/timinn-lidur-haegt


Also check out other Music events in Selfoss, Entertainment events in Selfoss.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for Tíminn líður hægt can be booked here.

Advertisement

Nearby Hotels

Flúðir, Laugarvatn, Arnessysla, Iceland, Selfoss

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change.We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Klúbbhúsið

Klúbbhúsið

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Tíminn líður hægt, 24 May | Event in Selfoss | AllEvents
Tíminn líður hægt
Sat, 24 May, 2025 at 04:00 pm