HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta, 19 June | Event in Selfoss | AllEvents

HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta

Leikhópurinn Lotta

Highlights

Thu, 19 Jun, 2025 at 06:00 pm

Sigtún, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland

Advertisement

Date & Location

Thu, 19 Jun, 2025 at 06:00 pm (GMT)

Sigtún, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland

Sigtún 11, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Selfoss, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta stígur á stokk nítjánda sumarið í röð og býður börnum og fjölskyldum um allt land sprúðlandi skemmtun í formi nýrrar uppfærslu á söngleiknum Hrói Höttur.

Hrói Höttur er eitt vinsælasta leikverk Lottu fyrr og síðar. Nú eru liðin ellefu ár frá því að það var frumsýnt í fyrsta sinn, og því sannarlega tilefni til að dusta af því rykið – nú er það tilbúið í ferskum og breyttum búningi fyrir bæði gamla og nýja áhorfendur. Eins og Leikhópurinn Lotta er hvað þekktastur fyrir, er hér á ferðinni ævintýrakokteill þar sem sögunni um Hróa Hött er blandað saman við annað þekkt ævintýri – að þessu sinni syfjuðu prinsessuna Þyrnirós.

Í bland við skemmtileg lög, fjöruga dansa, fullorðinsbrandara og góðan skammt af aulahúmor verður til fullkomin skemmtun fyrir alla aldurshópa.

Áhorfendur fá að kynnast Hróa Hetti og trúföstu vinum hans, Þöll og Þyrnirós, sem berjast fyrir réttlæti í Ævintýraskóginum. Persónur á borð við Jóhann prins, illgjarnan fógeta, Tomma litla og álfkonur skjóta einnig upp kollinum í þessari kraftmiklu og fjörugu sýningu og lofar Lotta góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Sýningin er klukkutími að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, koma með nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Það er líka gott að hafa símann vel hlaðinn því eftir sýningu gefst áhorfendum kostur á að fá mynd af sér með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

Miðaverð er 3,900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.

Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 fyrir 1 af hverjum miða.

________________________________________

Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson

Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Andrea Ösp Karlsdóttir, Sumarliði V. Snæland Ingimarsson

Höfundur lagatexta: Sævar Sigurgeirsson

Hljóðblöndun tónlistar: Axel „Flex“ Árnason

Hljóðblöndun á sýningum: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Búningahönnun: Kristína R. Berman, Rósa Ásgeirsdóttir og leikhópurinn

Danshöfundur: Ágústa Skúladóttir & leikhópurinn

Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson

Leikmunir: Leikhópurinn


You may also like the following events from Leikhópurinn Lotta:

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta can be booked here.

Advertisement

Nearby Hotels

Sigtún, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Sigtún 11, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland,Selfoss, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Leikhópurinn Lotta

Leikhópurinn Lotta

4 Followers

Are you the host? Claim Event

Advertisement
HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta, 19 June | Event in Selfoss | AllEvents
HRÓI HÖTTUR - Selfoss, Sigtún - Leikhópurinn Lotta
Thu, 19 Jun, 2025 at 06:00 pm