Una Torfa og Haffi halda tónleika við Sundlaugina að Hlöðum í Hvalfirði. Tónleikagestir geta ýmist dýpt sér í laugina eða setið við bakkann. Laugin verður um 35-36° og því notalegt að svamla um og hlusta. Einnig eru gestir hvattir til að taka með sér tjaldstóla ef þeir kjósa að sitja við bakkann.
__
Í sumar leggja Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson, einnig þekktur sem CeaseTone, af stað í músíkalst ferðalag um landið. Parið hefur marga músíkfjöruna sopið, þau hafa flakkað um landið og flutt lög í stórum sölum og litlum kirkjum, fyrir fólk á öllum aldri á blíðviðriskvöldum og í óveðri.
Í þrjár vikur helga Una og Haffi sig því gleðilega verkefni að spila úti um allt land. Með sinn hvorn gítarinn að vopni og í góðum félagsskap verða þau óstöðvandi og skemmtilegheitin allsráðandi. Eltið þau uppi og skiljið allt nema góða skapið eftir, af því að staðreyndin er sú að við þurfum ekki neitt.
Frekari upplýsingar má finna á www.unatorfa.com
Bakhjarlar okkar eru Ölgerðin, Kormákur og Skjöldur, Íslandshótel, 66Norður og Hljóðtækjaleigan Lúxor. Tónleikaferðalagið er einnig vottað af BÍT - Bandalagi Íslenskra Tónleikahaldara og framleitt af Iceland Sync Creative.
Fyrir frekari upplýsingar og fyrirspurnir má senda
Y2FtaWxsYSB8IGljZWxhbmRzeW5jICEgY29t
You may also like the following events from Una Torfa: