Töfrabragðanámskeið fyrir 8-12 ára, á námskeiðinu verða kennd auðveld og erfið töfrabrögð, stór og lítil, farið í leiki og við skemmtum okkur. Námskeiðinu lýkur svo með sýningu fyrir foreldra og aðra gesti, þar sem árangur vikunnar verður sýndur.
Töfrabragðanámskeið 10. – 13. júní
þri-fös kl. 9-14.
fös. kl. 9-16 (sýning kl. 15)
verð 24.500
Námskeið í töfrabrögðum og sviðsframkomu fyrir 8 - 12 ára, fyrir byrjendur sem lengra komna.
Umsjónarmaður:
Jón Víðis Jakobsson, hefur verið töframaður í yfir 20 ár, haldið námskeið í töfrabrögðum og gefið út Töfrabragðabók. Hann hefur unnið með börnum í fjölmörg ár bæði hjá ÍTR og CISV, haldið leikjanámskeið og töfrabragðanámskeið á vegum ÍTR, Námsflokka Hafnarfjarðar og fleiri.
Undanfarin ár hafa töfranámskeiðin verið vinsæl, hér eru nokkrar tilvitnanir frá foreldrum:
"Þetta er alveg frábært námskeið, sýningin hjá krökkunum í lokin var alveg brilliant!"
"Má ég vera með næst?"
"Hún á eftir að lifa lengi á þessu, hún hefur ekki talað um annað alla vikuna."
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu minni www.tofrar.is eða með fésbókarskilaboðum, í síma eða með tölvupósti á
Jón Víðis: 895 3035,
am9udmlkaXMgfCB0b2ZyYXIgISBpcw==
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum
Umsóknir sendist á
am9udmlkaXMgfCB0b2ZyYXIgISBpcw==
_______________
með töfrakveðju
Jón Víðis, töframaður