Opnunarhátíð jóladagskrár með Allegro og Íslenska dansflokknum, 30 November | Event in Reykjavík | AllEvents

Opnunarhátíð jóladagskrár með Allegro og Íslenska dansflokknum

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland

Highlights

Sun, 30 Nov, 2025 at 02:00 pm

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland

Advertisement

Date & Location

Sun, 30 Nov, 2025 at 02:00 pm (GMT)

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland

Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Opnunarhátíð jóladagskrár með Allegro og Íslenska dansflokknum
Sunnudaginn 30. nóvember kl. 14 er opnunarhátíð jóladagskrár Þjóðminjasafnsins í barna- og fjölskyldurýminu sem nú er komið í jólabúning. Jóladagskráin hefst á jólatónleikum nemenda úr Allegro Suzukitónlistarskólanum og atriðum úr sýningunni Jóladraumar frá Íslenska dansflokknum.

Jóladagskrána í heild sinni má sjá hér: https://www.thjodminjasafn.is/frettir-og-greinar/joladagskra-thjodminjasafnsins

14:00 – Jólatónleikar Allegro Suzukitónlistarskólans
14:30 – Jóladraumar með Íslenska dansflokknum

Fiðlu- og píanónemar frá Allegro Suzukitónlistarskólanum spila jólalög fyrir gesti. Meðal annars má heyra klassísk jólalög; Bráðum koma blessuð jólin, Skreytum hús og Klukknahljóm. Einnig verða flutt klassísk verk, til að mynda La folia eftir Corelli og Fantaisie-impromtu eftir Chopin.

Ævintýrið Jóladraumar lifnar við með Íslenska dansflokknum. Jóladraumar er ævintýraleg aðventustund fyrir alla fjölskylduna þar sem dansarar Íslenska dansflokksins birtast sem stórkostlegir jólakarakterar í dansandi gleði. Á hátíðinni eru flutt brot úr verkinu og endað á skemmtilegu, litlu jólaballi þar sem gestir fá að dansa í kringum lifandi jólatré og fá stórskemmtilega danskennslu. Íslenski dansflokkurinn flytur dansverkið Jóladrauma í heild sinni í Borgarleikhúsinu á aðventunni.

Gestir geta einnig skrifað jólakveðju í notalegu umhverfi til ástvina á fallegt kort og póstlagt það í rauðan póstkassa á staðnum — pósturinn sér um að koma kveðjunni alla leið.

Komið og upplifið með okkur sannkallaða jóladrauma umvafin ljúfum jólatónum á Þjóðminjasafninu!

Enginn aðgangseyrir er á viðburðinn.


You may also like the following events from Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland:

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Get updates and reminders
Ask AI if this event suits you
Advertisement
Opnunarhátíð jóladagskrár með Allegro og Íslenska dansflokknum, 30 November | Event in Reykjavík | AllEvents
Opnunarhátíð jóladagskrár með Allegro og Íslenska dansflokknum
Sun, 30 Nov, 2025 at 02:00 pm