ÚTGÁFUTÓNLEIKAR, GEISLADISKUR OG LJÓÐABÓK Í EINUM PAKKA
Tónverk eftir Kolbein Bjarnason samið við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur. Flytjendur eru söngkonurnar Herdís Anna Jónasdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir og CAPUT-hópurinn undir stjórn Guðna Franzsonar.
Hér eru tekin fyrir tíu ljóð úr jafn mörgum ljóðabókum Steinunnar sem komu út á frá 1969 – 2019. Í ljóðunum, jafnt sem tónlistinni, er áheyrandanum fleygt öfganna á milli; frá brjáluðum lestarfarþega til heitttrúaðs flökkumunks, frá innhverfum hugleiðingum til ofsafenginna yfirlýsinga.
Hljóðfæraleikarar:
Jónas Ásgeir Ásgeirsson, harmóníka
Guðrún Óskarsdóttir, semball
Elísabet Waage & Gunnhildur Einarsdóttir, hörpur
Frank Aarnink & Steef van Oosterhout, slagverk
Tónleikarnir verða haldnir í Kaldalóni.
Miðaverð: 3.900 kr.
Áritaður geisladiskur er innifalinn í miðaverði
Ljósmynd eftir Þórarin Stefánsson