Ertu klár í áskorun?
Björgunarsveitin Ársæll býður þér að taka þátt í okkar spennandi nýliðastarfi, sem hefst með kynningu þann 28. ágúst kl. 19:30 í Gróubúð við Grandagarð 1.
Nýliðastarfið okkar er tveggja ára ævintýri þar sem þú lærir allt frá grunnatriðum björgunarstarfs til sérhæfðra verkefna. Fyrra árið einbeitum við okkur að því að byggja upp færni með námskeiðum og æfingum sem fylgja stöðluðu kerfi frá Landsbjörgu, svo þú verður „Björgunarmaður 1“ áður en þú veist af.
Seinna árið gefur þér tækifæri til að sérhæfa þig í því sem þér þykir mest spennandi. Hvort sem þú hefur áhuga á breyttum bílum, sjóbjörgun, fjallamennsku, rústabjörgun, leitartækni eða fyrstu hjálp, þá erum við með hópa sem henta þér. Þú ræður ferðinni!
Auk þess snýst björgunarsveitarstarf ekki bara um starfsemina sjálfa— það er frábær félagsskapur þar sem margir eignast sína bestu vini. Hér deilum við áhuganum á útivist, áskorunum og þeirri ómetanlegu tilfinningu að geta aðstoðað aðra þegar á reynir.
Þú þarft ekki að vera ofurhetja til að byrja.
Ef þú hefur áhuga, smá úthald og grunn útivistarbúnað, þá ertu klár í slaginn! Komdu á kynninguna, kynnstu okkur og sjáðu hvort þetta sé ekki einmitt það sem þú hefur verið að leita að.
Við hlökkum til að sjá þig!