Komdu og opnaðu á orkuna þína með hálsstöðinni 💫
Light language eða ljósatungumál er tungumál sálarinnar, tíðni og kóðar handan þess rökfasta. Orka og heilun sem getur hjálpað við að tengjast æðri vitund og innsæi. Ljósatungumál er ekki eitthvað sem þarf að skilja eða rökstyðja með huganum, heldur eitthvað sem fundið er með hjartanu. Þegar ljósatungumál er virkjað getur það losað um innri hindranir og komið okkur í samband við sannleika okkar, heilað og veitt stuðning í daglegu lífi og í andlegri iðkun.
Það eru ýmsar leiðir til að opna á ljósatungumál og getur það gerst algjörlega sjálfkrafa eða með því að vera virkjað: í heilun, í miðlun, í hugleiðslu o.s.frv. Að taka þátt með opinn huga getur opnað á ljósatungumál þitt eða hafið þína vegferð til þess 💫
Hvernig opnar þú á ljósatungumál
Með opnu hjarta og án væntinga til ljósatungumálsins verður aðgangurinn að því greiðari. Að leyfa sér að taka á móti heilun og orkuflæði frá mismunandi iðkendum, eða frá einum eða tveimur sem sál þín finnur samhljóm með.
Að sleppa tökunum á niðurstöðunni:
Að fela alheiminum löngun þína til að virkja ljósatungumálið, án nokkurrar væntingar um það hvort það muni gerast eða ekki opnar inn á tengingu þína við þig og hjálpar þér að sleppa takinu og leyfa þér að upplifa heilun og orkuflæði.
Alheimurinn elskar flæði – hann lokar sig þegar við þrýstum of fast eða höldum of fast í það sem við erum að "reyna" að stjórna.
Tíminn byrjar á hjartaopnandi Cacao ❤
Við leiðum þig í gegnum æfingar til að opna á hálsstöðina og þína innri heilun með rödd og hefjum svo virkjun ljósatungumálsins.
Daníel Þorsteinsson tónheilari sér um lifandi tónlist sem hjálpar orkunni þinni að ná hærri tíðni, víbringur tónanna hafa áhrif á orkuna þína og heilun.
Jóní Jónsdóttir light language activator og Kolbrún Ýr heilari og KAP practitioner munu aðstoða þig við virkjun ljósatungumáls og lífsorkunnar innra með þér.
Þetta verður einstakur viðburður sem þú mátt ekki missa af!
Takmarkað pláss!
Verð: 11.000 kr
Þú getur skráð þig með því að kaupa miða í "tickets"
You may also like the following events from Lifðu betur með þér: