Hugvit getur byggt betri heim (16. maí - 27. júní)
Í tilefni af formlegri opnun Elliðaárstöðvar og tilkomu borholuhúss Carbfix – eftir hönnuðinn og arkitektinn Einar Þorstein Ásgeirsson (1942–2015) býður Elliðaárstöð, í samstarfi við Carbfix, upp á smástundarsýningu í nýrri gestastofu Elliðaárstöðvar þar sem vísindi og sköpunarkraftur mætast. Á sýningunni má sjá valda muni frá Hönnunarsafni Íslands, Carbfix og Jarðhitasýningunni. Ljósmyndir eru úr einkasafni fjölskyldu Einars.
Borholuhúsið sem var upphaflega notað fyrir jarðhitavinnslu Orkuveitunnar á Hellisheiði og síðar fyrir niðurdælingarholur Carbfix hefur nú fengið nýtt hlutverk í Elliðaárstöð sem upplifunar- og sýningarrými. Í dag er borholuhúsið tákn um framtíðarsýn og sjálfbærar lausnir sem Carbfix stendur fyrir. Það hefur vakið verðskuldaða athygli á heimsvísu, meðal annars prýtt forsíðu National Geographic. Á meðan sýningin stendur verður gestum boðið að stíga inn í húsið og upplifa krafta náttúrunnar.
Arkitektinn Einar Þorsteinn var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni og byggði hugmyndir sínar á þeirri sannfæringu að hugvit og sköpun gætu stuðlað að betri heimi. Borholuhúsið fellur því vel að umhverfi og hugsjón Elliðaárstöðvar sem áfangastaðar þar sem tvinnað er saman heimi lista og vísinda með sjálfbærni og sköpunargleði að leiðarljósi.
Sýningin mun standa frá 16. maí til 27. júní í gestastofu Elliðaárstöðvar og er opin á virkum dögum frá 10 til 16.
Building a better world
Celebrating the grand opening of Elliðaárstöð and the arrival of the Carbfix borehole dome by designer and architect Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942–2015), Elliðaárstöð in collaboration with Carbfix, invite you to a pop-up exhibition in the new visitor center at Elliðaárstöð, where science and creativity meet. The exhibition features items from the Icelandic Museum of Design and Applied Art, Carbfix and the Geothermal Exhibition. Photographs are from the private collection of Einar’s family.
The borehole dome, which was originally used for Orkuveitan’s geothermal energy production at Hellisheiði and later for Carbfix’s injection wells, has taken on a new role at Elliðaárstöð as an experience and exhibition space. Today, the borehole house symbolizes revolutionary ideas and the sustainable solutions that Carbfix represents and has attracted global attention for, even appearing on the cover of the National Geographic magazine.
Einar Þorsteinn Ásgeirsson was ahead of his time regarding ideas about sustainability, basing his concepts on the conviction that ingenuity and creativity could contribute to a better world. The borehole house thus fits well with the environment and vision of Elliðaárstöð as a destination where art and science are intertwined with sustainability and creativity as guiding principles.
The pop-up exhibition will be open on weekdays from 10:00 to 16:00 in the new visitor centre at Elliðaárstöð till the 27th of June.
Also check out other Exhibitions in Reykjavík, Arts events in Reykjavík.