DANSSÝNING OG DANSLEIKUR ÁRSINS!
DANSGALA 2025
Iceland Dance Festival kynnir í fyrsta sinn á Íslandi, Dansgala 2025, stærstu danssýningu og dansleik ársins.
HVAR: HARPA - SILFURBERG
HVENÆR: LAUGARDAGINN 7. JÚNÍ N.K.
TÍMI: 21:00
Þetta verður sannkölluð danshátíð, fyrir alla! Svo komdu, og njóttu þess að sjá framúrskarandi dansara á heimsmælikvarða stíga á stokk!
DAGSKRÁIN
Kvöldið hefst á glæsilegri sýningu þar sem atvinnudansarar á heimsmælikvarða stíga á svið og sýna listir sínar í samkvæmisdönsum og argentínskum tangó.
Að sýningu lokinni breytist salurinn í dansgólf þar sem gestir fá að dansa sjálfir! Regína Ósk, Svenni Þór og Bjarni Ara taka lagið við undirleik hljómsveitar.
Meðal þeirra heimsþekktu dansara sem koma fram eru:
- Nikita Bazev & Hanna Rún (Margfaldir Íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum)
- Joel Lopez & Kristina Bespechnova (Heims-og Evrópumeistarar latín dönsum)
- Marco Sirocchi & Dora Kilin (Evrópumeistar í Ballroom dönsum)
- Björn Sverrir & Birgitta Dröfn (Margfaldir Íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum)
- Hany Hadaya & Bryndís Halldórsdóttir (Þekktustu tangódansarar landsins)
- og fleiri...
Regína Ósk og Svenni Þór stýra dagskrá kvöldins en listrænn stjórnandi danssýningarinnar er Adam Reeve. Hann er fyrrum heimsmeistari í samkvæmisdönsum en margir Íslendingar þekkja hann úr þáttunum Dans, dans, dans og Allir geta dansað þar sem hann gegndi sama hlutverki.
Ekki láta þessa danshátíð framhjá þér fara og tryggðu þér sæti áður en það verður uppselt. Við lofum töfrum!
Í boði er að bóka 10 manna hringborð við dansgólfið sem hentar vel fyrir hópa. Einnig er í boði að kaupa miða í stúku.
Tryggðu þér miða á Tix.is
You may also like the following events from Iceland Dance Festival:
Also check out other
Festivals in Reykjavík.