Bergmál úr garðinum, 10 August | Event in Reykjavík | AllEvents

Bergmál úr garðinum

Seigla

Highlights

Sun, 10 Aug, 2025 at 08:00 pm

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Advertisement

Date & Location

Sun, 10 Aug, 2025 at 08:00 pm (GMT)

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Austurbakki 2, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Bergmál úr garðinum
Thor í tónum - aldarafmæli skálds

Flytjendur: KIMI ensemble: Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari, Katerina Anagnostidou slagverksleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona

Tálgljáandi…litvíxlandi…geislaflökt. Snöggfærðar sýnir sem leiftra og loga. Dropar í dýjamosa titra, glitra einsog smágerð djásn. Húmskyggður…hafdjúpslitur…öskra því öskra þú sær // öskraðu hærra æri sær…

Sagnaskáldið Thor Vilhjálmsson hefði fagnað aldarafmæli þann 12. ágúst 2025. KIMI ensemble efnir af því tilefni til tónleika þar sem flutt verða tónverk, bæði gömul og ný, samin við texta eftir skáldið. Efnisskráin samanstendur meðal annars af tveimur nýjum verkum sem samin voru fyrir tilefnið eftir tónskáldin Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Hauk Tómasson, sem og verkum eftir Áskel Másson og Atla Heimi Sveinsson - en Thor átti gjöfult samstarf við þá báða. Verk Maríu Huldar er samið við náttúruljóð Thors, „Thalatta: Fimm ljóð um hafið“, þar sem steinharpa Páls Guðmundssonar á Húsafelli verður í lykilhlutverki, á meðan verk Hauks „Bergmál úr garðinum“ er samið við vel valin prósabrot sem snúa að þekktum þemum úr skáldskap Thors; mannlífi - handanheimi - náttúru.

Thor Vilhjálmsson var afkastamikill rithöfundur og þýðandi, brautryðjandi módernisma í íslenskum bókmenntum og ötull talsmaður menningar og lista í samfélaginu. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar á ferli sínum, svo sem Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Skáldið var afar tónelskt og sótti gjarnan innblástur í tónlist, sér í lagi lifandi flutning klassískrar tónlistar.

Tónleikaspjall kl. 19:00: Fáðu þér drykk í Hörpuhorni og spjallaðu við flytjendur Seiglu um tónleikana sem eru framundan, efnisskrána og tónlistina sem þeir munu spila seinna um kvöldið.


Efnisskrá:

Áskell Másson (1953)
„Skugginn hefur flókna vél“ (1991) - vídjóverk

Áskell Másson (1953)
Spor í spori (1994/2025, endursamið fyrir KIMA)

KIMI ensemble/Thor (spuni)
„Tónn sem helzt í tvær og hálfa mínútu, úr skálklukku (í fís-moll)“ - ljóð eftir Thor Vilhálmsson við spuna KIMA ensemble

Haukur Tómasson (1960)
Bergmál úr garðinum (frumflutningur)
I. mannlíf
II. handanheimur
III. náttúra

Ingibjörg Þorbergs (1927-2019)
Grámosinn glóir: „Kvöld smalans“ (1998)

Upplestur / Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
„Þrennir smámunir“ - Afmæliskveðja til Thors 1985
Á milli kaflanna þriggja verða lesin valin textabrot eftir Thor.

María Huld Markan (1980)
Thalatta: Fimm ljóð um hafið (frumflutningur)

Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
Haust (1981, ljóð eftir Thor Vilhjálmsson)


Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2025. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Listaháskóla Íslands og Íslenska Schumannfélaginu.


You may also like the following events from Seigla:

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for Bergmál úr garðinum can be booked here.

Advertisement

Nearby Hotels

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Seigla

Seigla

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Bergmál úr garðinum, 10 August | Event in Reykjavík | AllEvents
Bergmál úr garðinum
Sun, 10 Aug, 2025 at 08:00 pm