Við erum spennt að bjóða upp á 9D breathwork ferðalagið: Letting go and forgive.
Þetta er djúpt og umbreytandi ferðalag sem er hannað fyrir þá sem eru tilbúnir að sleppa takinu á því sem heldur aftur af þeim — hvort sem það séu erfiðir atburðir úr fortíðinni, áföll, gremja eða dómharka gagnvart sjálfum sér eða öðrum. Ferðalagið skapar öruggt og nærandi rými þar sem þú getur losað um líkamlegar og andlegar byrðar og opnað fyrir nýjan kraft, tilgang og tengingu við sjálfan þig.
Þú getur tengst innri styrk þínum, upplifað aukinn frið og innra jafnvægi, og búið til rými fyrir eitthvað nýtt og betra. Með fyrirgefningu og sjálfsást getur þú fundið frelsið sem fylgir því að sleppa takinu – og tekið næsta skref í átt að umbreytingu.
Þetta er eitt af flagskipum 9D Breathwork ferðalaganna og er djúp reynsla sem allir ættu að leyfa sér að upplifa.
🌿 Algengir ávinningar:
✨ Frelsi frá fortíðinni – Slepptu tökunum á því sem hefur haldið aftur af þér.
🌬️ Losun líkamlegra og andlegra byrða – Léttleiki og innri ró taka við.
💖 Fyrirgefning & sjálfsást – Dýpri tenging við sjálfan þig og aðra.
🌊 Tilfinningalegt jafnvægi – Aukin seigla og stöðugleiki í daglegu lífi.
🕊️ Endurheimt innri friðar – Skapaðu pláss fyrir nýjan kraft og lífsgleði.
🌱 Umbreyting & vöxtur – Komdu nær þér sjálfri/sjálfum og lifðu í takt við þinn sannleika.
9D BreathWork er byltingarkennd öndunarmeðferð þar sem notast er við Sómatíska öndun og nútíma hjóðtækni sem hjálpar þér að ná enn dýpra inn í undirheim meðvitundarinnar.
Hún veitir þátttakendum tækifæri til að fara í gegnum djúpa sjálfskoðun, skoða ómeðvituð viðhorf og sögur sem eru að halda aftur af þeim, upplifa tilfinningalega losun og tengjast meiri þakklæti, krafti og gleði gagnvart lífinu og hefur reynst áhrifarík gegn streitu, kvíða og þunglyndi.
Þessi meðferð nær þessu fram með framúrskarandi árangri með því að hægja á bylgjulengd heilans frá tíðnini 14-30 Hz (Beta) niður í lægri tíðni (Theta) tengd djúpslökun og svefn-tíðni heilans. Þannig fá þátttakendur aðgang að undirmeðvitundinni sinni og geta byrjað að losa sig úr fjötrum áfalla, endurbyggt dýpri skilning á sjálfum sér og skapað öflugri hugmyndir og viðhorf um lífið og eigið sjálf.
Þetta er einstakt ferðalag sem sameinar huga, líkama og sál, og eitthvað sem allir sem hafa áhuga á að bæta lífsgæðin sín og byggja sig upp verða að prófa og upplifa. Því það er erfitt að lýsa þessari reynslu nema að hafa upplifað hana sjálf/ur.
Ávinningar 9D Breathwork
-Minnkar áhrif streitu: 9D Öndun hjálpar við að stjórna og minnka streitu og stuðlað að betri líðan.
-Tilfinningalosun: Þátttakendur geta losað um gamlan sársauka sem situr í líkamanum og veldur þjáningu og stöðnun á lífsorkunni.
-Líkamlegir ávinningar: Meðferðin hefur sýnt fram á góðan árangur í að létta á líkamlegum óþægindum, stuðlað að betri svefni, haft jákvæð áhrif á blóðsykurinn og kólesteról.
-Skýrari fókus: Með því að róa hugann upplifa þátttakendur oft aukinn skýrleika og einbeitingu.
-Dýpri sjálfskunnátta: Með því að kafa inn í undirmeðvitundina upplifa þátttakendur meiri skilning á sjálfinu og andlegan vöxt.
-Sterkara hugarfar: Með uppbyggjandi leiddum ferðalögum fá þátttakendur tækifæri til að kveðja gömul viðhorf og sögur sem eru að halda aftur af þeim og stíga fyllilega inn í kraftinn sinn.
Við hlökkum til að taka á móti þér og skapa öruggt rými fyrir þig að mæta með þig alla/nn.
Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram hér:
https://www.sjalfid.is/9D-breathwork