„Dreptu þig bara“ – stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum
Málstofa UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtaka um stafrænt ofbeldi og áreitni og afleiðingar þess.
Hvar: Mannréttindahúsið, Sigtún 42
Hvenær: Þriðjudaginn 25. nóvember 2025
Klukkan: 10:00 – 11:30
📱
Þrátt fyrir þær framfarir sem orðið hafa í jafnréttismálum síðustu þrjá áratugi, er kynbundið ofbeldi enn eitt útbreiddasta og alvarlegasta mannréttindabrot heims. Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Rótgrónar staðalímyndir um kynhlutverk, skaðleg samfélagsleg viðhorf, veik lagaumgjörð og skortur á fjármagni og úrræðum koma í veg fyrir að kynbundið ofbeldi sé upprætt.
Tækniframfarir síðustu ára hafa verið samfélögum til góða á margan hátt. En þær hafa einnig skapað ný rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni fær að þrífast óáreitt. Kynferðisleg áreitni og eltihrelling eru algengustu birtingarmyndir stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum; dreifing nektarmynda án samþykkis, óumbeðin skilaboð, niðrandi færslur á samfélagsmiðlum og símtöl. Aðrar birtingarmyndir stafræns ofbeldis eru neteinelti, hatursorðræða, ærumeiðingar, dreifing nektarmynda, hótanir um birtingu mynda (sextortion) og hefndarklám. Ofbeldið á sér stað í ólíkum stafrænum miðlum: snjallsímum, tölvum, spjallrásum, samfélagsmiðlum, og í tölvuleikjum.
💻
Inngangsorð:
Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, ÖBÍ
Fundarstjórn:
Rakel Þorbergsdóttir, fjölmiðlakona og upplýsingafulltrúi
📱
Þátttakendur í pallborði:
Bergrún Andradóttir, skrifstofustýra Samtakanna '78
Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra
Ólafur Hrafn Steinarsson, framkvæmdastjóri Aska Studios, fyrrum formaður RÍSÍ
Melína Kolka, framkvæmdarstjóri TÍK - Tölvuleikjasamtaka íslenzkra kvenna
🖥️
Dagskrá:
10:00 Hús opnar
10:10 Opnunarerindi
10:20 Rakel Þorbergsdóttir, fundarstjóri kynnir þátttakendur
10:25 Pallborð hefst (hugvekjur 3-5 mín hvert)
10:45 Umræður
11:10 Spurningar úr sal
11:25 Umræðum lokið og samantekt
11:30 Viðburði lýkur
You may also like the following events from UN Women Ísland: