Hjálmar og Elíza Newman í Kirkjuvogskirkju á Ljósanótt
Menningarfélag Hafna kynnir tónleika með Hjálmum sunnudaginn 7.september í Kirkjuvogskirkju í Höfnum.
Hin ástsæla hljómsveit (með Suðurnesja rætur) Hjálmar mun koma og vera með tónleika á Ljósanótt í Höfnum á Reykjanesi. Á tónleikunum flytja Hjálmar fjölbreytt lög af ferli sínum þar sem aðal markmiðið er að skapa einstaka og notalega stund fyrir tónleikagesti í fallegu kirkjunni í Höfnum.
Eins og fyrri ár þá byrjar Elíza Newman tónleikana með nokkrum af sínum lögum.
Miðaverð er 5200 kr og fer eingöngu fram á Tix.is
Komið og klárið Ljósanótt á mögnuðum tónleikum í Kirkjuvogskirkju.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til viðhalds og varðveislu Kirkjuvogskirkju.
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No
Undo
Interested
Ticket Info
Tickets for Hjálmar og Elíza Newman í Kirkjuvogskirkju á Ljósanótt can be booked here.