One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg, 28 June | Event in Hafnarfjörður

One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Highlights

Sat, 28 Jun, 2025 at 05:00 pm

1.5 hours

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland

Advertisement

Date & Location

Sat, 28 Jun, 2025 at 05:00 pm to 06:30 pm (GMT)

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður

Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg
ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY
Mara Miribung, Gizem Şimşek og Abélia Nordmann í Tríó Trëi flytja þjóðlagatónlist frá ólíkum menningarheimum sem og eigin tónsmíðar. Þær velta því fyrir sér hvað það þýðir að vera manneskja. Það þema birtist í tónlist þeirra, bæði á sviðsettum tónleikum og í þverfaglegu samstarfi. Tónlistarkonurnar þrjár flétta saman ólíkan bakgrunn sinn, tónlist úr austri og vestri og fagna fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum. Tónleikarnir One’s for sorrow, two’s for joy eru innblásnir af kvenkyns persónum sem fylgja fæðingu og dauða í söng.

Trëi er staðsett í Basel. Nafn tríósins kemur frá ladínsku, retórómanskri minnihlutamállýsku sem töluð er í ítölsku Ölpunum.

Forsölutilboð á Tix til 10. júní kl. 09:00. Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á 14.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 14.6.-29.6.2025. Takmarkað upplag er í boði.

ABÉLIA NORDMANN (Þýskaland/Frakkland/Sviss) stýrir kórum og uppfærslum í Basel og annars staðar í Sviss. Hún er stjórnandi barnakórsins Bühnen Bern, Ensemble Choeur3 og Contrapunkt kórsins. Með TRËI (Nordmann, Simsek, Miribung) syngur hún, semur og flytur þjóðlög frá ýmsum menningarheimum og eigin verk. Verk hennar og útsetningar eru flutt af barna- og fullorðinskórum. Abélia Nordmann er meðlimur í menningarráði Basellands og meðlimur í listrænni ráðgjafarnefnd Evrópsku unglingakórahátíðarinnar í Basel. Verk hennar fjalla alltaf um félagsleg, vistfræðileg og stjórnmálaleg málefni. https://www.abelianordmann.org/

GIZEM ŞIMŞEK (Tyrkland/Bretland) fæddist í Istanbúl, en faðir hennar er tyrkneskur og móðir hennar skosk. Hún bjó þar í 18 ár og flutti síðan til Sviss vegna trúarlegs og pólitísks þrýstings. Lagaval hennar spannar allt frá vestrænni klassískri tónlist til austurlenskrar tónlistar, með tyrkneskri þjóðlagatónlist, spuna, levantískri framúrstefnulegri þjóðlagatónlist og eigin tónsmíðum. Söngur hennar einkennist af belting, búlgörskum klanghljóðum, tilraunum með mongólskan hálssöng, yfirtónasöng og litum vestræns barokks. Hún býr og starfar í Basel. www.gizemsimsek.earth

MARA MIRIBUNG (Ítalía) fæddist í Bolzano og ólst upp í dal í Ladin-fjallgarðinum í Dólómítafjöllum. Hún útskrifaðist frá Guildhall School of Music and Drama í London og starfar sem sellóleikari og flytjandi á tónleikum og í leiksýningum. Hún semur fyrir danssýningar og kemur fram í leikhúsi (Theatre Basel, Residenztheater München, Berlínaróperan). Hún hefur lengi unnið með leikstjóranum Thom Luz en uppfærslur hans hafa verið settar upp á stöðum eins og Berlin Theatertreffen, Kammerspiele München, Feneyjatvíæringnum, Kampnagel-hátíðinni í Hamborg, Stadsschouwburg Amsterdam og fleirum. Sem barokksellóleikari og hljómsveitarspilari starfar hún í alþjóðlegum hljómsveitum. Með hljómsveitinni TRËI syngur Mara í tónleikaverkefnum og þverfaglegu samstarfi. Einsöngsverkefni hennar „Sad Songs for a Crocodile“ er safn trúbador-popplaga fyrir selló, söng og looper. Hún býr sem sjálfstætt starfandi listamaður í Basel. www.maramiribung.com


EINA SUMARNÓTT
SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG
14.6-29.6.2025

TÓNLEIKAR:

TÍMINN OG VATNIÐ
Lau. 14.6. kl. 17:00
Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir

ÞAÐ VAR EITT KVÖLD
Sun. 15.6. kl. 17:00
Mótettukórinn, Stefan Sand

ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR
Lau. 21.6. kl. 17:00
Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui

DRAUMAR ÚR NORÐRI
Sun. 22.6. kl. 17:00
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir

MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 26.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 27.6. kl. 17:00
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY
Lau. 28.6. kl. 17:00
Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Şimşek, Abélia Nordmann

ÓPERUGALA
Sun. 29.6. kl. 17:00
Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi

Eina sumarnótt
Sönghátíð í Hafnarborg 2025

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14. - 29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.

Á Sönghátíð má hlusta á fjölbreytta tónleika með gamalli og splunkunýrri íslenskri og erlendri tónlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljóðasöng, þjóðlög, kórverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.

Á hátíðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem rétt eru að hasla sér völl núna og bjartar vonir framtíðarinnar.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því níunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com Miðasalan fer fram á Tix.


NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:

SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
23. júní - 27. júní
9:00-12:00 & 13:00-16:00
Fyrir 6-12 ára
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir

TÓNLISTARSMIÐJA
28. júní
kl. 11:00-11:45
kl. 13:00-13:45
Valgerður Jónsdóttir
Fyrir 3-5 ára
með foreldrum

MASTER CLASS
23. - 26. júní
kl. 9:30-16:30
Kristinn Sigmundsson
Fyrir söngnemendur og söngvara

KRÍLASÖNGUR
29. júní
kl. 11:00-11:45
kl. 13:00 og 13:45
Svafa Þórhallsdóttir
Fyrir 6-18 mánaða með foreldrum

Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com











You may also like the following events from Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest:

Also check out other Workshops in Hafnarfjörður, Arts events in Hafnarfjörður, Theatre events in Hafnarfjörður.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

Tickets for One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg can be booked here.

Advertisement

Event Tags

Nearby Hotels

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland,Hafnarfjörður, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Reserve your spot

Host Details

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Sönghátíð í Hafnarborg - Songfest

Are you the host? Claim Event

Advertisement
One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg, 28 June | Event in Hafnarfjörður
One's for sorrow, two's for joy - Trio Trëi - Sönghátíð í Hafnarborg
Sat, 28 Jun, 2025 at 05:00 pm