Ferð á vegum FFF og Náttúruskólans
Útivistar og ævintýrafjölskylduferð í Loðmundarfjörð. 16.- 17. ágúst.
Tveir göngudagar, ein gistinótt.
Við ætlum að dvelja eina nótt í hinum undirfagra firði Loðmundarfirði. Tilvalið jafnt fyrir fjölskyldur sem eru að stíga sín fyrstu skref í útivist og sem lengra komna.
Fara í göngur um svæðið, leika í fjörunni, skoða fallega steina,,kíkja á fuglalíf, príla í klettum og almennt njóta náttúrufegurðar og samveru.
Dagur eitt: Við sameinumst í bíla á Borgarfirði eystri kl 9:00 ( við íþróttahús) svo keyrum við yfir fjöll og leggjum bílum við Klyppstaðarskála. Komum okkur fyrir og nærum okkur. Skundum í könnunarleiðangur niður að fjöru og sjáum hvað rekur á fjörur okkar. Gengið til baka í frekari ævintýraleit. Um kvöldið verður svo kjötsúpa og kvöldvaka.
Dagur tvö: Eftir morgunverð og fjölskyldujóga höldum við glaðbeitt með nesti og bros á vör í gönguferð uppi í Norðdal þar sem við munum skoða himinháar klettaborgir, kíkja eftir álfum og njóta friðsældar og fegurðar dalsins. Göngum aftur í skála og græjum okkur til heimferðar.
Áætluð heimferð frá Loðmundarfirði er kl 15:00.
Verð: 20,000 þúsund fyrir fullorðinn og 5000 fyrir börn yngri en 18 ára. Innifalið: Skálagisting, leiðsögn, og kvöldverður í Loðmundarfirði. Tekið er á móti skráningum á heimasíðu ferðafélagsins til 15. júní.
Fararstjórn Þórdís Kristvinsdóttir og Hildur Bergsdóttir.
You may also like the following events from Ferðafélag Fljótsdalshéraðs:
- This Saturday, 26th July, 09:00 am, Dagsferð: Þjóðfell in Egilsstadir
- Next Saturday, 2nd August, 09:00 am, Dagsferð á heiðarbýlin, þessi klassíska in Egilsstadir
- Next month, 8th August, 08:00 am, Ævintýraferð Fjölskyldunnar í Egilsseli á Lónsöræfum 8. ágúst til 11. ágúst Ferðin er uppseld in Egilsstadir