Sjáum við þig á Bjórhátíð Ölverk 2025 hér í Hveragerði?!
Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!
Bjórhátíðin mun fara fram helgina 3. til 4. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala verður auglýstur síðar.
Listi yfir alla þá frábæru framleiðendur sem verða á hátíðinni verður birtur síðar ❤️
----- Aðrar hagnýtar upplýsingar -----
Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.
Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )
Gisting
Við mælim með því að bóka sem allra fyrst gistingu en það er hægt skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar (
https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.
Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is
Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.
Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).
Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á
b2x2ZXJrIHwgb2x2ZXJrICEgaXM=