Grindarsmíðanámskeið á Tyrfingsstöðum 27-29. ágúst 2025
Námskeið í grindarsmíði verður haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði dagana 27.-29. ágúst næstkomandi. Á Tyrfingsstöðum hafa verið endurreist og viðgerð nokkur torfhús, torfbær, útihús og hlöður, sem saman mynda einstaka minjaheild. Á námskeiðinu stendur til að reisa húsgrind í hesthúsið, sem áfast er gömlu híbýlunum á staðnum.
Námskeiðslýsing:
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra að smíða einfalda húsgrind. Hluti af námskeiðinu er í formi kynningar og vettvangsskoðunar, en megináhersla verður á verklega kennslu, m.a. rif á rekaviði. Helstu verkfæri verða á staðnum.
Markmið námskeiðsins eru m.a. að nemendur:
-þekki helstu hugtök í grindarsmíði og heiti verkfæra
-læri að byggja einfalda húsgrind úr tilsniðnu timbri og rekaviði
-tileinki sér góðar vinnureglur við viðgerðir og umgengni fornra og friðaðra mannvirkja.
Hvænær: 27-29 ágúst 2025, kl. 9-16.
Hvar: Tyrfingsstaðir í Skagafirði
Kennari: Snædís Traustadóttir, húsasmíðameistari
Verð: 70.000 kr. Innifalið; efni, áhöld, kaffiveitingar og léttur hádegisverður.
*Athugið að nemendur þurfa sjálfir að sjá um gistingu og mat utan námskeiðs.
Fornverkaskólinn minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.
Skráning: Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga:
https://www.glaumbaer.is/is/fornverkaskolinn/namskeid
Athugið að 20.000 kr. skráningargjald fæst ekki endurgreitt.
Hvað þarf að hafa með: Hlýjan fatnað, hlífðarföt (pollagalla), vinnuhanska og stígvél/góða skó.
Fyrirspurnir: Inga Katrín D. Magnúsdóttir svarar frekari fyrirspurnum á netfanginu
aW5nYWthdHJpbiB8IHNrYWdhZmpvcmR1ciAhIGlz
Fjöldi þátttakenda: Lágmark 6 – hámark 12.
**Þeim er sækja námskeið Fornverkaskólans er bent á að huga að eigin tryggingum, en Fornverkaskólinn er ekki ábyrgur gagnvart slysum.