Tónleikar til minningar um Stefán Svan - til styrktar Einstökum börnum, 8 September | Event in Reykjavík

Tónleikar til minningar um Stefán Svan - til styrktar Einstökum börnum

Highlights

Mon, 08 Sep, 2025 at 08:30 pm

Akraneskirkja

Advertisement

Date & Location

Mon, 08 Sep, 2025 at 08:30 pm (GMT)

Akraneskirkja

Skólabraut 15, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Tónleikar til minningar um Stefán Svan - til styrktar Einstökum börnum
Þann 8. september verða liðin 5 ár frá því að frumburðurinn minn, hann Stefán Svan, lést tæplega fjögurra mánaða gamall. Í minningu hans ætla ég að halda tónleika sem verða til styrktar Einstökum börnum.
Hann Stefán Svan minn tilheyrði Einstökum börnum allt sitt líf en hann var einn afar fárra sem hafa greinst með heilkennið Cornelia de Lange syndrome hér á landi.
Einstök börn hafa stutt við bakið á mér og mörgum öðrum fjölskyldum barna með sjaldgæf heilkenni og greiningar við ýmislegt sem fylgir því að eiga einstakt barn. Eins hef ég reynt að leggja mitt af mörkum til að gefa af mér tilbaka og kynna félagið með því að segja sögu okkar Stefáns Svans ásamt því að aðstoða á annan hátt. Sú upphæð sem safnast við sölu aðgangsmiða á tónleikana mun því renna óskert til Einstakra barna í minningu Stefáns Svans.

Á tónleikunum koma fram söngvinir mínir úr ýmsum áttum, tónlistarmenn sem hjálpuðu mér að gera kveðjustund Stefáns Svans ógleymanlega og ég ber sterkar taugar til en eiga það öll sammerkt að gefa vinnu sína í þágu þessa góða málefnis.
Fram koma:
Páll Óskar
Ragnheiður Gröndal
Hallveig Rúnarsdóttir
Ylfa og Hallur Flosabörn
Tindatríó
Rakel Páls
Viðar Guðmundsson
Mótettukórinn
Ásta Marý Stefánsdóttir

Kynnir kvöldsins verður Ingvar Örn Ákason vinur minn en hann ætlar að sjá til þess að halda uppi fjörinu á milli atriða.

Ef þið viljið tryggja ykkur miða þá opnar miðasalan þann 1. september inná vefverslun Einstakra barna;

https://www.einstokborn.is/is/vefverslun

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Akraneskirkja, Skólabraut 15, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland
Get updates and reminders
Advertisement
Tónleikar til minningar um Stefán Svan - til styrktar Einstökum börnum, 8 September | Event in Reykjavík
Tónleikar til minningar um Stefán Svan - til styrktar Einstökum börnum
Mon, 08 Sep, 2025 at 08:30 pm