Kynningarfundur í fræðsluröðinni ,,STEFnumót” fer fram í Borgarnesi þann 27. febrúar. Þar mun Ísabella Lövenholdt, starfsmaður STEFs, fara yfir hlutverk STEFs og praktísk atriði varðandi skráningu laga, úthlutanir, styrki og annað sem tengist tónhöfundum.
Soffía Björg, söngkona og tónhöfundur, verður einnig á staðnum og mun tengja erindið við sína upplifun sem tónlistarkona á Íslandi, segja bransasögur og veita góð ráð.
Tónlistarfólk af öllum stærðum og gerðum er hvatt til að mæta í létt spjall og kaffiveitingar, í boði STEFs á Kaffi kyrrð (Blómasetrið) í Borgarnesi föstudaginn 27. febrúar klukkan 17:00.
-----
Um STEF:
STEF eru frjáls félagasamtök, sem eru eingöngu í eigu höfunda og stjórnað af höfundum. Þau eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Allar innheimtar tekjur fara til úthlutunar, eftir að rekstrarkostnaður hefur verið greiddur. Fyrir utan þá hefðbundnu starfsemi STEFs, að annast innheimtu höfundaréttargjalda og úthluta þeim til rétthafa, geta þeir rétthafar sem afhent hafa STEFi umboð sitt fengið ýmsa viðbótarþjónustu hjá STEFi. Hlutverk STEFs er að varðveita og efla höfundarétt á sviði tónlistar. Fyrir hönd rétthafa innheimtir STEF gjöld fyrir notkun tónlistar sem flutt er opinberlega. Viðskiptavinir STEFs eru t.d. útvarps- og sjónvarpsstöðvar, tónleikahaldarar, verslanir, veitingastaðir, hárgreiðslustofur og heilsuræktarstöðvar, sem og tónlistarveitur eins og Spotify, YouTube o.fl.