ATH BHM tekur þátt í kostnaði við námskeið sem þetta.
Fyrirlestari er George Faller (MS, LMFT) sem er viðurkenndur EFT leiðbeinandi.
Verð 35.000
Það er bæði krefjandi og spennandi að vinna með pörum en það getur líka verið ruglandi og niðurdrepandi. Það er auðvelt að upplifa að maður nái ekki þeim árangri sem manni langar að sjá.
Ef þú ert einn af þeim meðferðaraðilum sem langar að vinna með pörum en upplifir oft að þú viljir í raun hætta meðferðarstarfinu þá erum við með góðar fréttir fyrir þig.
Við bjóðum þér að skoða með okkur erfiðustu augnablik parameðferðar. Þau augnablik þar sem skjólstæðingar sýna ýmist algjörann kulda og fjarlægð frá maka sínum yfir í mjög
tilfinningarík viðbrögð sem geta birst sem reiði og biturleiki. Annar aðilinn sækist eftir viðbrögðum og hinn aðilinn hörfar og fer inn í skelina sína.
Þegar þessar aðstæður verða til í parameðferð getur það kallað fram mjög röng viðbrögð hjá meðferðaraðilanum. Við getum þá reynt að fá þann dregur sig í hlé til að opna sig og reynt á
sama tíma að fá þann sem sækist eftir viðbrögðum til að draga sig í hlé. Ef þetta er gert með röngum hætti geta viðbrögð meðferðaraðilans gert illa jafnvel verra.
Á þessu námskeið lærir þú aðferðafræði til að spegla tilfinningaviðbrögð skjólstæðinga þinna og hjálpa þeim að orða innri upplifun sína. Markmiðið er að beina sjónum frá því að kenna makanum um (að sjá sjónarhorn hins aðilans) og færa fókusinn yfir á eigin viðkvæmni (sjónarhorn á sjálfan sig). Við lærum að æfa hvernig á að viðhalda einbeitingu í samtölum, vinna með hvert augnablik og kafa dýpra á taktískan hátt þrátt fyrir sterk viðbrögð
skjólstæðinga okkar. Við munum kanna, sýna, æfa og samþætta EFT á gagnvirkan og persóulegan hátt.
Markmið námskeiðsins
Meðferðaraðilar munu læra hvernig á að nálgast pör á opinskáan og forvitinn hátt í stað þess að skjólstæðingurinn upplifi að hann sé í yfirheyrslu. Mikilvægustu skrefin í EFT vinnu verða brotin niður í sértækar og hagnýtar smærri einingar til að styrkja meðferðaraðila í því að halda einbeitingu, vera jarðtengdir og hjálpa skjólstæðingum að upplifa umbreytandi augnablik og tengslamyndun – allt byggt á nútíma tengslakenningu sem á við um parasambönd.
Á námskeiðinu munu þátttakendur:
Kynnast forsendum og aðferðafærði EFT, varnarviðbrögðum í neikvæðum samskiptum, sem og hvaða lykilbreytingar þurfa að eiga sér stað.
Greina jákvæð samskiptamynstur sem geta komið í staðinn fyrir neikvæð og í ofsafegin viðbrögð.
Læra lykilaðferðir EFT til að vinna úr tilfinningalegum viðbrögðum og draga úr átökum.
Skilgreina undirliggjandi tilfinningar þeirra sem draga sig í hlé og þeirra sem sækjast eftir viðbrögðum.
Um er að ræða mjög markvisst námskeið, þar sem algeng vandamál í EFT-meðferð verða tekin fyrir og við kennum hvernig hægt er að draga úr árásum.
Hver er GEORGE FALLER?
Áður en George Faller fór í starf innan geðheilbrigðissviðsins, starfaði hann í 20 ár sem slökkviliðsmaður og lögreglumaður í New York. Sem klínískur sálfræðingur hjá slökkviliði New York, sérstaklega eftir atburðina 11. september 2001, kviknaði áhugi hans á að hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir áföllum.
Hann er viðurkenndur leiðbeinandi, handleiðari og meðferðaraðili í tilfinningamiðaðri meðferð (EFT). Hann er stofnandi New York Center for Emotionally Focused Therapy, þar sem hann gegnir stöðu stjórnarformanns. Hann er einnig eftirlitsaðili hjá American
Association for Marriage & Family Therapy (AAMFT) og kennir við Ackerman Institute for the Family í Manhattan. Hann starfar sem fjölskyldu- og hjónabandsráðgjafi í Connecticut og New York.
George er einnig yfirmaður þjálfunar hjá Greenwich Center for Hope & Renewal í Connecticut og situr í stjórn Porter Cason Institute við Tulane University í New Orleans.
Hann hefur víðtæka reynslu og er fær í að tengjast ólíkum hópum. Hvort sem hann veitir hjónaráðgjöf fyrir stjórnendur á Wall Street, heldur fyrirlestra fyrir bandaríska herinn eða kennir meðferðaraðilum um allan heim, þá hefur hann einstaka hæfileika til að ná til sinna áheyranda.
George leggur mikla áherslu á að koma EFT til minnihlutahópa og stuðla að nýjungum í árangursríkri meðferð. George er höfundur bókanna True Connection, Sacred Stress og Emotionally Focused Family Therapy og er meðstjórnandi hlaðvarpsins Foreplay Radio.
Nánari uppýsingar um George Faller er á heimasíðu hans www.georgefaller.com og www.successinvulnerability.com.
UMSAGNIR UM EFT-ÞJÁLFUN GEORGE FALLER
“Hooooolllyyyyy crap! George Faller námskeiðið! Hvar á ég að byrja? Hér eru mikilvægastu skilaboðin: Hvað sem þú þarft að gera, hvaða plön sem þú þarft að breyta eða fórnir sem þú þarft að færa, ef þú vilt verða betri í EFT þarftu að fara á námskeið hjá George Faller.”
~ Wesley Little, LPC, EFT-vottaður meðferðaraðili og handleiðari.
“George Faller hefur þann hæfileika að gera það ekki aðeins mögulegt, heldur raunhæft, að vinna með pörum í djúpum vanda. Sama hver reynsla þín er, þá gefur hann meðferðaraðilum
skýr og gagnleg tæki sem virka í hvaða aðstæðum sem er.”
~ Teri Murphey, PhD, EFT-vottaður meðferðaraðili og handleiðari.
“Það var afar ánægjulegt að hafa George Faller hjá okkur um helgina. Ég fékk frábær viðbrögð við námskeiðinu og lærði sjálf ótrúlega mikið! Hann er frábær kennari – skýr, auðskiljanlegur, fyndinn og hlýr. Hann kveikti neistann í okkur öllum!”
~ Karen Shore, PhD, EFT-vottaður meðferðaraðili og handleiðari.
“EFT-námskeið George Faller er eitt það hagnýtasta sem ég hef farið á. Ég gat strax notað það sem ég lærði í klínísku starfi mínu vikuna eftir námskeiðið.”
~ Dianna Troutt, EFT-vottaður meðferðaraðili og handleiðari.
You may also like the following events from Lausnin fjölskyldu- og áfallamiðstöð: