Verið velkomin í Lífskraftur hjartans og sálarinnar!
Hér taka Marta Dröfn og Valkyrja saman höndum og bjóða upp á heilunar- og miðlunartíma í Umi studio að Austurströnd 1 á Seltjarnarnesi.
Marta Dröfn sér um heilunina í tímanum þar sem hún vinnur með Kundalini orkuna á sinn einstaka hátt. Þú liggur á dýnu á meðan á vinnunni stendur og vinnur Marta með þig þannig að Kundalini orkan mun streyma á þá staði sem hún vill flæða á hverju sinni.
Það er mjög einstaklingsbundið hvað gerist í tímanum, sumir upplifa tilfinningar eins og reiði, sorg, gleði. Aðrir geta upplifað djúpa slökun, hita, kulda, strauma í líkamanum, þörf fyrir að gráta eða hlæja. Ósjálfráðar hreyfingar geta komið fram, minningar eða sýnir. Allt er þetta eðlilegt þegar lífsorkan þín fer af stað.
Áhrif tímans geta síðan fylgt þér áfram. Algengir ávinningar eru betri svefn, dýpri tenging við innsæið, meiri gleði, jafnvægi, vellíðan og ánægjulegri samskipti.
Á meðan á heiluninni stendur tengir Valkyrja sig inn á hvern og einn, og skrifar niður þau skilaboð sem koma til þeirra sem mæta í tímann. Skilaboðin koma inn á það sem er í gangi á meðan á heiluninni stendur en þau gætu líka teygt sig lengra út og er misjafnt hvað kemur til hvers og eins. Skilaboðin eru skrifleg og fá þátttakendur þau send á netfangið sitt.
Tíminn er tveggja klukkustunda langur og heilmikil vinna í gangi allan tímann. Gott er að mæta í þægilegum fötum en í tímanum liggur þú á dýnu og slakar vel á.
Næsti tími: 19. júní 2025
Staður: Umi studio Austurströnd 1, 170 Seltjarnarnes
Til að staðfesta þátttöku:
* Greiða inn á reikning: Kennitala: 081177-5549 og reikningsnúmer 0309-26-081177
Verð: 9.900 kr
Settu sem skýringu: Lífskraftur 19. júní
Frábært að eiga kvöldstund í kærleiksríkri og sterkri heilunarorku og fá til sín skilaboð sem gagnast þér hvað best að svo stöddu.
Kveðja,
Marta Dröfn og Valkyrja