Hlustunarpartí og tónleikar: Skátar, Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight | Event in Reykjavík | AllEvents

Hlustunarpartí og tónleikar: Skátar, Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight

Skátar

Highlights

Sat, 28 Jun, 2025 at 07:00 pm

Smekkleysa Plötubúð

Date & Location

Sat, 28 Jun, 2025 at 07:00 pm (GMT)

Smekkleysa Plötubúð

Laugavegur 33B, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Hlustunarpartí og tónleikar: Skátar, Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight
Skátar og Grandmothers Records kynna með stolti hlustunarpartí og tónleika í Smekkleysu Plötubúð á laugardaginn 28. júní klukkan 19:00. Um er að ræða hlustun á nýrri hljómjöfnun og þeirri fyrstu á breiðskífu þeirra, Heimsfriður í Chile: Hverju má breyta, bæta við og laga. Þessi sex laga skífa kom upprunalega út óhljómjöfnuð í 300 númeruðum eintökum á geisladisk árið 2004 og seldist fljótlega upp. Skátar ætla ekki aðeins að bjóða uppá hlustun á plötunni heldur verður sérstök forhlustun á nýju lagi sem næstum enginn hefur heyrt. Lagið mun koma út síðar með sumrinu og er því til mikils að vinna með því að mæta.


Við bjóðum ykkur að hlusta á plötuna með okkur sem hljómjöfnuð var af Glenn Schick. Hann hefur starfað hefur fyrir íslenskt tónlistarfólk í mörg ár ásamt því að fá Grammy-verðlaun fyrir störf sín sem m.a. telja verk með Of Montreal, Danny Brown, Killer Mike, El-P, Drive-By Truckers, Mastodon og mörg fleiri.


Heimsfriður í Chile: Hverju má breyta, bæta við og laga inniheldur lög á borð við Karnival, Dauðadiskó og Halldór Ásgrímsson, það síðastnefnda er lag um ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar um að setja Ísland á lista yfir hinar svokölluðu viljugu þjóðir í undanfara árásar Bandaríkjanna á Írak árið 2003. Nafnið á plötunni kom til sveitarinnar í draumi bassaleikarans Björns Kolbeinssonar.
Gestum gefst og tækifæri til að spyrja Skáta út í plötuna og annað sem lýtur að tónsmíðum og slíku. Gítarleikari Skáta, Ólafur Steinsson, sem búsettur hefur verið í Kaliforníu verður á staðnum í gegnum fjarfundarbúnað.

Skátar á streymisveitum:


Apple: https://music.apple.com/us/artist/skatar/265787917
Bandcamp: https://skatar.bandcamp.com
Spotify: https://open.spotify.com/artist/2TMxfbhRU3OIGHMQhbSJCZ


Lítið hefur farið fyrir Skátum á síðustu árum en hljómsveitin var virkust á árunum 2003 til 2009 og gaf út fyrrnefnda skífu ásamt Ghost of the Bollocks to Come og Goth báðum megin. Skátar sneru aftur árið 2013 á minningartónleikum bassaleikarans Björns Kolbeinssonar sem lést af slysförum árið 2012. Árið 2018 spiluðu Skátar á Norðanpaunk og í beinni hjá KEXP á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Skátar hafa spilað á tónlistarhátíðum á borð við In The City, Swn Festival og Aldrei fór ég suður notið hylli tónlistarunnenda og miðla á borð við BBC, XFM London, KEXP, The Reykjavík Grapevine, Rolling Stone Magazine og fleiri.
Að lokinni hlustun verða Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight með tónleika. Kaffihúsið hjá Smekkleysu verður að sjálfsögðu opið og er hægt að fá ýmislegt til að væta kverkarnar.



Markús hefur sungið með Skátum, Sofandi, Stroff og kórnum Kliður en líklegast þekktastur fyrir tónlist sína undir Markús & The Diversion Sessions sem hefur gefið út vinsæl lög á borð við „É bisst assökunar“ og „Seinasta tegundin“.



Spotify: https://open.spotify.com/artist/591QvC4m2O4toHdrVuUwAw



Ólöf Rún Benediktsdóttir hefur getið sér gott orð í myndlist og sem verkefnastýra Stelpur rokka. Hún er einnig í hljómsveitinni Svartþoka og gaf út sína fyrstu smáskífu, Stormurinn, í apríl. Ólöf kemur fram ein síns liðs og framkallar draumkennda tóna með söng, þeremín, hljómborði og fleiri hljóðfærum.



Spotify: https://open.spotify.com/track/3yZlb79Y3hZzZActWHj1K2?si=8538f27cddc54de2



Synthea Starlight eru tvíeyki skipað þeim Jarþrúði Karlsdóttur og Thoracius Appotite og gáfu þau út breiðskífuna The Synthea Starlight Album í fyrra. Tvíeykið spilar blöndu af geimdiskó og stefnu sem kallast whimsygoth og hafa notið þónokkra vinsælda á Spotify og samfélagsmiðlinum TikTok. Tónlistin er skemmtileg blanda og má heyra samhljóm með þeim og tónlistarfólki á borð við Giorgio Moroder, Kate Bush, John Carpenter o.fl..



Spotify: https://open.spotify.com/artist/2wdZsM5glB0zn6VwcpF6Lx



Athugið að enginn aðgangseyrir er á laugardaginn en gestum er frjálst að borga í pottinn sem allur rennur til þeirra Ólafar og Synthea Starlight.


Also check out other Arts events in Reykjavík, Festivals in Reykjavík.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Event Tags

Nearby Hotels

Smekkleysa Plötubúð, Laugavegur 33B, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Get updates and reminders

Host Details

Skátar

Skátar

Are you the host? Claim Event

Hlustunarpartí og tónleikar: Skátar, Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight | Event in Reykjavík | AllEvents
Hlustunarpartí og tónleikar: Skátar, Markús, Ólöf Rún og Synthea Starlight
Sat, 28 Jun, 2025 at 07:00 pm