Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson eru kunnug mörgum landsmönnum eftir að hafa komið víða við í sinni tónlistarsköpun undanfarin ár. Hljómplata þeirra, Tíu íslensk sönglög, sló rækilega í gegn við útgáfu hennar árið 2022 og síðustu jól vakti jólaplata þeirra mikla lukku landans. Þann 12. júní munu þau leika listir sínar á efri hæð Austurbæjarbíós, Silfurtunglinu.
Árið 1955 opnaði skemmti- og veitingastaðurinn Silfurtunglið og var geysivinsæll á meðal ungu kynslóðarinnar. Um skeið var staðurinn opinn sex daga vikunnar og lifandi tónlist hvert kvöld. Tónlistarsagan drýpur af veggjum staðarins en um það tveggja áratuga skeið sem staðurinn var starfræktur komu fram hljómsveitir á borð við Óðmenn, Tríó Reynis Sigurðssonar, Hljómar, Júdas, Flowers og Mánar, svo að nokkur dæmi séu tekin. 2025, hálfri öld eftir að skemmtistaðnum var lokað, verður aftur hægt að sækja tónleika á efri hæð Austurbæjarbíós og munu GDRN og Magnús ríða á vaðið í þessu goðsagnakennda húsi við Snorrabraut. Þau munu flytja efni af sönglagaplötum sínum í bland við eigin efni á notalegu sumarkvöldi í Reykjavík.
GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og tvær sólóplötur til viðbótar. GDRN, árið 2020 og Frá mér til þín, árið 2024. Auk tónlistarferilsins lék hún eitt aðahlutverkanna í Netflix seríunni Kötlu.
Magnús Jóhann Ragnarsson hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Hann hefur gefið út átta plötur undir eigin nafni og tvær stuttskífur. Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023 og 2025 og tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Ljósvíkingar. Hann hefur undanfarið annast tónlistarstjórn í sjónvarpsþáttunum Idol en Bubbi Morthens, Friðrik Dór, Bríet, Laufey, Skúli Sverrisson og Moses Hightower eru á meðal þess þverfaglega fjölda listafólks sem hann hefur starfað með.
You may also like the following events from Magnús Jóhann: