Ástandið á Gaza er orðið „verra en helvíti á jörðu“ sagði forseti Alþjóðaráðs Rauða Krossins í vikunni, orð sem eru lýsandi fyrir hversu ómögulegt er að lýsa ástandinu með nógu sterkum orðum.
Félagið Ísland – Palestína boðar til þögullar göngu frá Hallgrímskirkju, til áminningar um að þjóðarmorðið á Gaza í Palestínu er enn í fullum gangi.
Hvern einasta dag hækkar tala myrtra og undanfarna daga hefur matvælaaðstoð verið beitt sem vopni í þjóðernishreinsunum Ísraels á Palestínumönnum. Stjórnvöld á Íslandi hafa ekki, þrátt fyrir fögur orð, gripið til neinna aðgerða til að beita sér á alþjóðavettvangi gegn þessu þjóðarmorði. Við söfnumst saman við Hallgrímskirkju í Reykjavík og göngum í þögn niður Skólavörðustíg og niður á Lækjartorg. Gengið verður með hvíta böggla sem tákna þann fjölda barna sem myrtur hefur verið í þjóðarmorðinu. Á Lækjartorgi fer fram gjörningur og að honum loknum stöndum við saman í þögn, undir hljóðum frá Gaza.
Mætum og sýnum samstöðu í andstöðu okkar við þjóðarmorðið!
//
No words left to describe the horror.
The Iceland–Palestine Association hosts a silent march from Hallgrímskirkja, as a reminder about the ongoing the genocide in Gaza, Palestine. The situation there has become "worse than Hell on earth," said the president of the International Committee of the Red Cross this week.
Every single day, the death toll rises, and in recent days, food aid has been used as bait by Israel to mass murder Palestinians. The Icelandic government, despite its promises, has taken no action on the international stage to oppose this genocide.
We will gather at Hallgrímskirkja in Reykjavík and walk in silence down Skólavörðustígur and to Lækjartorg. Participants will carry white bundles symbolizing the number of children who have been killed in the genocide. At Lækjartorg, there will be a performative gesture to commemorate and protest the killing of people looking for aid. Afterwards, we will stand together in silence, accompanied by sounds recorded in Gaza.
Let's show up and show our opposition to this genocide - in solidarity!