Aðventuhátíð Borgarbyggðar verður haldin í Skallagrímsgarði, fyrsta í aðventu, þann 30. nóvember klukkan 16:00 🎄
Jólaljósin verða tendruð við skemmtilega dagskrá. Þau Árni Beinteinn og Sylvía Erla frá bestu lögum barnanna mæta, jólasveinar kíkja í heimsókn, Kristbjörg Ragney og Guðrún Katrín frá Listaskóla Borgarfjarðar syngja vel valin jólalög.
Smákökur og kakó verða svo auðvitað á sínum stað ásamt jólamarkaði Öldunnar. 🎅
Kynnir verður Sigríður Ásta Olgeirsdóttir. 🎤
💫 Dagskrá í Safnahúsi:
Jólaföndur fyrir fjölskylduna frá kl. 13:00 – 15:00 og þá ætlar Æskukórinn að koma í heimsókn undir stjórn Theódóru Þorsteinsdóttur og syngja nokkur jólalög um klukkan. 15:00-15:30.
Njótum þess að eiga góða stund saman! 👋
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No
Undo
Interested
Ticket Info
To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.