Á miðvikudögum í aðventunni langar mig að bjóða þér notalegt rými til þess að næra þig, aftengjast samfélagslegu streitunni sem oft myndast á þessum tíma og tengjast þínum innri kjarna, í góðum hópi kvenna.
Námskeiðið er tækifæri til þess að gefa sjálfri þér dýrmæta gjöf, jafnvel þá allra mikilvægstu - þinn eigin tíma, nærveru og sjálfsumhyggju. Gjöf sem heldur áfram að gefa!
Til þess munum við nota ýmsar aðferðir og æfingar sem hafa nýst mér einstaklega vel síðustu árin, tól sem hafa hjálpað mér að komast aftur í tengingu við sjálfa mig. Æfingar sem styðja sérstaklega taugakerfið og hjálpa okkur að takast betur á við krefjandi tíma.
Vertu hjartanlega velkomin kæra kona, vinkona, seiðkona, móðir, amma."
Hátíðarkveðjur og Aðventu Andi,
Salvör Davíðsdóttir.
❤️🌲
HELSTU UPPLÝSINGAR:
Staðsetning: Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7
Dagsetningar: 3. desember; 10. desember; 17. desember (þú getur valið um öll skiptin eða stök skipti)
Tímasetning: 20:00-21:30
Verð: 19.900 kr (öll 3 skiptin) / 7.900 kr (stakt skipti).
Skráning: yogashala.is/adventuandi
Léttar veitingar verða í boði á námskeiðinu. Þér er velkomið að senda spurningar á
bmFtc2tlaWQgfCB5b2dhc2hhbGEgISBpcw==
You may also like the following events from Yoga Shala Reykjavík:
Also check out other
Health & Wellness events in Reykjavík.