ANNAR GLUGGI TIL HÆGRI
Einkasýning Ídrisar Róbertsdóttur
Sýningarstjóri: Ægis Zita
Listrænn stjórnandi: Inga Jónsdóttir
15. júní til 31. ágúst 2025
Annar gluggi til hægri er myndlistarsýning þar sem textíll ræður ríkjum. Textíll, eitt elsta listform veraldar, hefur fengið aukna og verðskuldaða athygli á undanförnum árum og því fagnaðarefni að fá að líta innsetningu Ídrisar Róbertsdóttur í Hallgrímskirkju. Hann er samofinn sögu kristni sem meðal annars má sjá í litríkum fagurlega hönnuðum höklum og altariskæðum. Með verkinu tekst listamaðurinn á við staðsetninguna, rýmið og arfleifðina. Sýningarstjórinn, Ægis Zita, setur það í nýtt samhengi því listaverkið var áður hluti af verðlaunaðri afmælissýningu Textílfélagsins 50/100/55 árið 2024 sem einnig var undir sýningarstjórn Ægisar Zita.
Innsetningin samanstendur af litríkum þráðum og línum sem mynda fjölskrúðug og margvísandi form sem komið er fyrir í einu afmörkuðu rými, umlukið fjórum súlum kirkjuskipsins framan við gluggann sem er annar til hægri þegar gengið er þangað inn. Kirkjuna hannaði hinn rómaði arkitekt, Guðjón Samúelsson (1887–1950) sem teiknað hefur margar af þekktustu byggingum landsins. Í engri annarri kirkju á Íslandi má sjá lofthæð sem í Hallgrímskirkju þar sem línur og form skapa heillandi stílhreinan heim enda tileinkuð þeim andans manni Hallgrími Péturssyni (1614–1674), þekktasta sálmaskáldi landsins. Línur úr penna skáldsins skópu ekki eingöngu form sálma heldur einnig veraldlegar vísur og ljóð. Kunnasta verk hans eru þó Passíusálmarnir sem hafa verið gefnir út oftar en nokkur önnur íslensk bók og þýddir á fjölda erlendra tungumála.
Þegar Hallgrímur þurfti að hverfa frá námi í Kaupmannahöfn settist hann ásamt fjölskyldu að á Suðurnesjum þar sem hann lifði erfiða tíma sem verkamaður. Velgjörðarmaður hans, Brynjólfur Sveinsson biskup í Skálholti, setti hann sem prest í Hvalsneskirkju að nokkrum árum liðnum þar sem orðsnilld hans tók að blómstra og náði eyrum sóknarbarnanna. Síðar þegar hann fékk stöðu við Hallgrímskirkju í Saurbæ náði skáldskapur hans hæstu hæðum. Bein sjónlína liggur frá öðrum glugga til hægri til Suðurnesja þar sem sterk öfl takast nú á í iðrum jarðar og móta landið í litríku sjónarspili.
Þannig nær innsetningin að leiða huga áhorfenda langt út fyrir hið afmarkaða rúm hennar en einnig inn á við. Með því að leysa formið upp, opna hálflokað form skúlptúrsins í miðjunni gefur Íris Róbertsdóttir verkinu ákveðna spennu þar sem hið jarðbunda togast á við hið upphafna og ósjálfrátt koma í hugann ljóðlínurnar Upp, upp mín sál og allt mitt geð ... úr Passíusálmunum.
Við vonum að þið megið vel njóta og ígrunda.
Inga Jónsdóttir listrænn ráðgjafi í Hallgrímskirkju
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR LJÓÐA OG LISTA!
--ENGLISH--
second window on the right
Solo exhibition by Ídris Róbertsdóttir
Curated by Ægis Zita
Artistic director: Inga Jónsdóttir
15th of June - 31st of August 2025
Second window on the right is an art exhibition devoted to textiles. One of the world’s oldest artistic media, textiles have attained greater, and well-deserved, attention in recent years. They have also played an integral role in the history of Christianity, as witnessed in beautifully-crafted chasubles and altar frontals. In this site specific installation the artist engages with the location, the monumentality of the space and its cultural heritage. Curator Ægis Zita places the work in a new context, to that of the Textile Association’s anniversary exhibition 50/100/55 in 2024.
The installation which comprises of multicoloured threads and lines that form multifarious, evocative shapes, has been installed in a dedicated space, between four columns in the nave, in front of the second window on the right upon entering the church. Hallgrímskirkja was designed by one of Iceland’s most acclaimed architects, Guðjón Samúelsson (1887–1950), who designed many of the country’s most admired public buildings in his time. The nave is the loftiest in any Icelandic church, where line and form come together into a captivatingly sleek style, fitting for a building dedicated to the Rev. Hallgrímur Pétursson (1614–74), Iceland’s most beloved devotional poet. Not only did he write verse that established the form of Icelandic hymns for centuries; he also composed secular poems. But he is best known for his Hymns of the Passion, which have been published more often than any other Icelandic book, and translated into many other languages.
When Hallgrímur had to abandon his theological studies in Copenhagen, he settled in the Suðurnes region of Iceland with his family, and earned a meagre living as a labourer. After some years his benefactor, Bishop Brynjólfur Sveinsson of Skálholt, appointed him to the parish of Hvalsnes in Suðurnes, where his oratorical talents developed and gained the attention of his parishioners. Later, when he served the parish of Saurbær in the west, his poetic powers reached their height. From the second window on the right, extends an exact geographical line to Suðurnes, where ongoing volcanic activity has been transforming the landscape in a spectacular manner in recent years.
The installation thus contrives to lead the observer’s mind far beyond its enclosure, as well as inwards. By reformulating the work around the central axis of the space, Ídris imbues the work with a certain tension, between the down-to-earth and the sublime; and involuntarily the words of the Hymns of the Passion come to mind: Up, up my soul, and all my mind!
We hope that you will enjoy experiencing the installation, and that it will give you food for contemplation.
Inga Jónsdóttir
Artistic advisor, Hallgrímskirkja
You may also like the following events from Hallgrímskirkja:
Also check out other
Arts events in Reykjavík,
Exhibitions in Reykjavík,
Literary Art events in Reykjavík.