*English below
Verið velkomin á afhjúpun og afhendingu Kærleikskúlunnar 2025 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, þriðjudaginn 2. desember kl. 11:00.
Gló stuðningsfélag hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003. Tuttugasta og þriðja Kærleikskúlan verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn um leið og hún verður afhent verðugri fyrirmynd.
Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kynnir listamann Kærleikskúlunnar 2025 en Listasafnið hefur frá upphafi veitt Gló aðstoð og leiðsögn við val á listamanni Kærleikskúlunnar. Biskup Ísland, Guðrún Karls Helgudóttir blessar Kærleikskúluna að vanda og hugljúf jólalög flytur Bjöllukór Tónstofu Valgerðar.
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 2.-23. desember og í vefverslun Gló - Kærleikskúlan.is
TVG-Zimsen flutti Kærleikskúluna til landsins og þökkum við þeim hjartanlega fyrir stuðninginn í ár!
Léttar veitingar að athöfn lokinni.
Verið hjartanlega velkomin!
Athöfnin fer fram í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem stendur við Tryggvagötu 17. Listasafn Reykjavíkur ber sig eftir því að tryggja gott aðgengi og er viðburðurinn aðgengilegur öllum. Tvö bílastæði fyrir fatlað fólk eru í Grófinni sem er vinstra megin við innganginn inn í Hafnarhúsið. Nokkur bílastæði eru við Hafnarhúsið Geirsgötumegin, en einnig er fjöldi bílastæða í bílahúsinu Vesturgötu 7 og Hafnartorgi sem er aðgengilegt frá Geirsgötu. Bílahús eru einnig í göngufjarlægð við Ráðhús, Kolaport og Traðarkot. Allt eru þetta gjaldskyld bílastæði á vegum Reykjavíkurborgar.
Welcome to The Globe of Goodwill Award and Preview
Gló invites you to the The Globe of Goodwill Award and Preview at Reykjavík Art Museum – Hafnarhus, December 2nd, at 11 am.
The 23rd edition of the Gló's Globe of Goodwill will be premiered at the same time as the The Globe of Goodwill Award will be awarded to someone whose work has challenged traditional values and views, inspired others to think differently and bettered the lives of fellow-citizens and society as a whole.
The Globe of Goodwill´s main mission is to enrich the lives of disabled children and youth in Iceland. All the proceeds from the sale go directly to Gló camp, Reykjadalur. The sale of the the Globe takes place December 5th-20th in selected stores and at Gló online store, www.glofelag.is/vefverslun
Light refreshments after the ceremony.
Everyone welcome!
The event will take place at Reykjavík Art Museum - Hafnarhús, located at Tryggvagata 17. Reykjavík Art Museum strives to ensure easy accessibility and make the event accessible to everyone. There are two parking spots reserved for people with disabilities in Grófin, to the left of Hafnarhúsið’s entrance. There are a few parking spots behind Hafnarhús on the Geirsgata side, accessible from Tryggvagata. Numerous parking places can be found in a parking garage at Vesturgötu 7 and Hafnartorg. Other parking garages within a walking distance are at Town Hall, Kolaport and Traðarkot. All these parking places requires payment.
Also check out other Arts events in Reykjavík, Nonprofit events in Reykjavík.